Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

ţriđjudagurinn 21. febrúar 2012

Samanburđur breytinga á stofnum lunda og sílis

Fimmtudaginn 23. febrúar næstkomandi klukkan 12:15-12:45 flytur Erpur Snær Hansen, líffræðingur á Náttúrustofu Suðurlands, erindi sitt „Samanburður breytinga á stofnum lunda og sílis við Ísland og í Norðursjó". Erindið er hluti af fyrirlestraröð sem Samtök náttúrustofa stendur að í vetur....
Meira
ţriđjudagurinn 7. febrúar 2012

Háskólasetur leitar ađ tilbođum í rútuferđir í sumar

Hluti af ţeim stóra íslenskunemum Háskólaseturs áriđ 2011.
Hluti af ţeim stóra íslenskunemum Háskólaseturs áriđ 2011.
Háskólasetur Vestfjarða á von á stórum hópi námsmanna á íslenskunámskeið í ágúst. Einnig á setrið von á minni hópum í vettvangsskóla og minni námskeið sem og á ráðstefnur í sumar og haust. Á næstu vikum mun Háskólasetrið leita eftir tilboðum frá rútufyrirtækjunum vegna ferða þessara hópa....
Meira
fimmtudagurinn 29. desember 2011

Arctic Frontiers 24.01.2012-28.01.2012, Tromsö

Aukinni sókn manna á norðurheimskautssvæðið fylgja hagrænar, pólitískar og félagslegar breytingar fyrir ríkin á norðurslóðum sem og fyrir vistkerfin. Það er því mikilvægt að stjórna verkum manna á norðurslóðum til að vernda umhverfi og viskerfi í fyrirsjáanlegri framtíð.

Arctic Frontiers ráðstefnan er vettvangur fyrir alla hagsmunaaðila á norðurslóðum til að skilgreina forgangsröðun fyrir þróun og rannsóknir undir kjörorðinu Jafnvægi milli nýtingar og verndun vistkera (Balancing human use and ecosystem protection).

Markmið Arctic Frontiers ráðstefnunnar er að veita betri heildrænan skilning á norðurslóðum og stuðla að sjálfbærri nýtingu sem byggir á vísindalegum grunni, menningarlegri næmni og samstarfi yfir landamæri.


Frekari upplýsingar og skráning: www.arcticfrontiers.com

ţriđjudagurinn 29. nóvember 2011

Auglýst eftir starfsmanni í móttöku

Háskólasetur Vestfjarða leitar að starfsmanni í hálft starf í móttöku til að annast símsvörun, umsjón með kaffistofu og almenn ritarastörf. Starfsmaður þarf að vera fjölhæfur og sveigjanlegur og geta leyst hinn móttökuritara af. 

Starfsmaðurinn vinnur fyrir allar stofnanir í Vestra-húsinu en er ráðinn af Háskólasetri Vestfjarða. Á hæðinni vinna um 40 starfsmenn við rannsóknir, kennslu og þjónustu, auk námsmanna og gesta.

Upplýsingar um starfið veitir Peter Weiss, forstöðumaður: weiss@UWestfjords.is  eða  450 3045 
Umsóknarfrestur: 15.12.11
mánudagurinn 28. nóvember 2011

Málţing um hagrćn áhrif menntunar á jađarsvćđi

Mynd: Bela Bergemann
Mynd: Bela Bergemann
Miðvikudaginn, 30.11.2011, 12:00-16:00, Háskólasetri. Tungumál: Enska.


Dagskrá málþings

Menntun er máttur - fyrir einstaklinga sem og heil svæði. En er aukin menntun ein og sér í þágu jaðarsvæða? Er nóg að tryggja menntun eða þarf meira til? Vestfirðingar og Skotar hafa skoðun á þessu og munu á þessu málþingi leiða saman hesta sína.

Vestfirðingar hafa í gegnum tíðina bariðst fyrir háskólamenntun á svæðinu og um leið fyrir staðbundnu námi á Vestfjörðum. Með tilkomu Háskólaseturs hefur umræðan færst á annað stig.

Á þessu málþingi koma saman fræðimenn eins og Kristinn Hermannsson og Robert Wright frá University of Strathclyde, Nicole Bourque frá University of Glasgow, Vífill Karlsson, sem hefur unnið við Háskólann á Bifröst og Háskólann á Akureyri og Anna Guðrún Edvardsdóttir, sem vinnur að doktorsritgerð í þessum málum á Íslandi og Skotlandi. Svo bætast við fyrirlesarar, sem glíma við þessar spurningar í sínum störfum, Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi, Shiran Þórisson, Atvimnuþróunarfélagi og Peter Weiss, Háskólasetri.  Frekari upplýsingar á vefsíðu

Háskólasamfélagiđ

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón