Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Ţróunarsjóđur innflytjendamála

Þróunarsjóður innflytjendamála er starfræktur í félags- og tryggingamálaráðuneyti og hefur ráðuneytið samið við Háskólasetur Vestfjarða um umsjón með vörslu og umsýslu sjóðsins. Innflytjendaráð fer með stjórn sjóðsins og gerir ráðið tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra um styrki hverju sinni.

Sjóðurinn var stofnaður í mars 2007 í þeim tilgangi að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda innflytjendum aðlögun að íslensku samfélagi og gera samfélaginu betur kleift að koma til móts við þá.

Stefnt er að því að árlega verði úthlutað úr sjóðnum. Í janúar 2008 var í fyrsta sinn úthlutað úr sjóðnum og þá fyrir árið 2007. Úthlutun fyrir árið 2008 fór svo fram í desember 2008.

Styrkir eru almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum, ekki síst grasrótar- og hagsmunafélögum innflytjenda. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 10 milljónir króna og geta styrkir verið að hámarki helmingur heildarkostnaðar verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku.

 

Allar nánari upplýsingar um sjóðinn má sjá á stikunni hér til vinstri. Stuttar kynningar á þeim verkefnum sem hafa verið unnin og sem er lokið má finna undir Samantektir eldra verkefna.


Umsóknareyðublað, reglur og fleira er að finna á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins, sjá einnig hlekki hér til vinstri.

 

 

 

 


Háskólasamfélagiđ

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón