Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Hádegistónleikaröđ Háskólaseturs Vestfjarđa og tónlistarhátíđarinnar Viđ Djúpiđ

Föstudagur 19. júní

Edinborgarhúsið
12:10
Hádegistónleikar
Pétur Jónasson, guitar
Pétur leikur á þessum stuttu tónleikum sýnishorn af verkum Kjartans Ólassonar, tónskálds, fyrir gítar og elektróník og segir frá jöfnum höndum. Um leið verða óvenjulegar tónsmíðaaðferðir Kjartans kynntar.
Pétur Jónasson er aðjúnkt við Listaháskóla Íslands.


Mánudagur 22. júní

Edinborgarhúsið
12:10
Hádegistónleikar
Sæunn Þorsteinsdóttir, cello
Sæunn Þorsteinsdóttir er ungur og upprennandi sellóleikari. Hún kynnir á þessum stuttu hádegistónleikum sellóið sem einleikshljóðfæri.
Til þess leikur hún meðal annars verk eftir Gabrielli Ricecare en hann skrifaði fyrst fyrir einleiksselló. Svo lokar Sæunn hringnum með því að leika verk eftir Nicholas Csicsko sem samið var sérstaklega fyrir hana.


Þriðjudagur 23. júní

Edinborgarhúsið
12:10
Hádegistónleikar
Matthías Nardeau, oboe

Einn frambærilegasti óbóleikari landsins kynnir og segir frá hljóðfærinu á þessum öðrum hádegistónleikum hátíðarinnar. Hann mun leika margvísleg tóndæmi líkt og Metamorphoses eftir Benjamin Britten fyrir óbó og einhverja kafla úr fantasíum eftir Georg Phillip Telemann. Að auki leikur hann þætti úr hljómsveitarverkum fyrir óbó og enskt horn.

Háskólasamfélagiđ

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón