Viðbrögð við náttúruvá
Háskólasetur Vestfjarða tekur þátt í verkefni um langtímaviðbrögð við náttúruvá. Verkefnið er unnið við Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands en margar stofnanir og félög sem koma að almannavörnum taka þátt í verkefninu. Verkefnið gengur út á það að greina hvað það er sem mestu máli skiptir þegar kemur að almannavörnum og aðstoð til fólks þegar frá líður áfalli og forgangsraða þessum atriðum, þannig að allir viti hver á að gera hvað og hver ber ábyrgð á hverju í uppbyggingu eftir náttúruhamfarir. Ætlunin er að búa til viðbragðsáætlanir sem eiga að gagnast sveitarfélögum um allt land þegar kemur að langtímaviðbrögðum við náttúruvá.
Fundur var haldinn í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði þann 14. september 2006 með þeim sem að verkefninu koma, en Ísafjarðarbær var valinn sem tilraunabæjarfélag vegna reynslu og árangurs sveitarfélagsins í almannavörnum.