Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Hagir og líðan ungs fólks á norðanverðum Vestfjörðum

Rannsóknir og greining - Háskólinn í Reykjavík
Rannsóknir og greining - Háskólinn í Reykjavík
Niðurstöður rannsókna meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk

Rannsóknir & greining hefur lagt viðamiklar kannanir fyrir nemendur efstu bekkja grunnskóla á Íslandi frá árinu 1999.

Í þessari skýrslu er athyglinni beint að högum og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla á norðanverðum Vestfjörðum.

 

Horft er til neyslu ungmenna á tóbaki, áfengi og ólöglegum vímuefnum og þær niðurstöður bornar saman við stöðu mála annars staðar á landinu. Einnig eru teknir til skoðunar áhættu- og verndandi þættir sem snerta félagslegt umhverfi ungmenna.

Hér að neðan getur að líta nokkrar af athyglisverðustu niðurstöðum rannsóknarinnar:

 

Dregið hefur mikið úr reykingum unglinga á norðanverðum Vestfjörðum á sl. ári. Þannig má nefna að í fyrra reyktu 11% áttundubekkinga daglega, en árið 2007 mælast daglegar reykingar ekki meðal nemenda í 8. bekk á norðanverðum Vestfjörðum. Enn fremur hefur hlutfall þeirra unglinga í 9. bekk á norðanverðum Vestfjörðum sem reykja daglega lækkað mikið á milli ára. Í fyrra reyktu 13% þeirra daglega, en í ár er þetta hlutfall komið niður 4%, sem er svipað og landsmeðaltalið (5%).

 

Munntóbaksneysla ungmenna á norðanverðum Vestfjörðum er svipuð og hjá íslenskum ungmennum yfirleitt (um 2% hjá níundubekkingum og um 5% hjá nemendum í 10. bekk.

 

Hins vegar er neftóbaksnotkun unglinga á norðanverðum Vestfjörðum mun útbreiddari en landsmeðaltalið, þó er hún verulega minni í ár en í fyrra.

 

Dregið hefur úr áfengisneyslu unglinga á norðanverðum Vestfjörðum milli ára. Þannig höfðu færri unglingar bragðað áfengi síðastliðna 30 daga í ár en í fyrra. Um 24% nemenda í áttunda bekk höfðu drukkið áfengi einu sinni eða oftar síðastliðna 30 daga árið 2006 en árið 2007 hefur þetta hlutfall lækkað niður í 9%. Hlutfall níundubekkinga sem höfðu drukkið áfengi einu sinni eða oftar síðastliðna 30 daga var 31% árið 2006 en er komið niður í 13% nú árið 2007. Þá sýna niðurstöður að hlutfall nemenda í 10. bekk var 37% árið 2006 en er 27% árið 2007. Neysla áfengis á meðal nemenda á norðanverðum Vestfjörðum er hlutfallslega minni en landsmeðaltalið.

 

Um 15% nemenda í 10. bekk á svæðinu sögðust í ár hafa orðið ölvuð á síðastliðnum 30 dögum, en í fyrra var hlutfallið 26%. Þá höfðu um 6% nemenda í níunda bekk orðið ölvuð á síðastliðnum 30 dögum í ár, en í fyrra var hlutfallið 13%.

 

Hassneysla ungmenna á norðanverðum Vestfjörðum er áþekk landsmeðaltali. Um 6% níundubekkinga hafa prófað hass einhvern tíma um ævina og um 7% tíundubekkinga.

 

Rúmur þriðjungur drengja á norðanverðum Vestfjörðum eru með foreldrum sínum utan skólatíma á virkum dögum og er það í samræmi við landsmeðaltal. Fyrir fjórum árum var hlutfallið á þessu landsvæði rétt rúm 20%. Þróunin hefur verið á aðra lund á meðal stúlknanna. Árið 2003 sögðust um 40% þeirra oft eða nær alltaf vera með foreldrum sínum utan skólatíma á virkum dögum en þetta hlutfall hefur lækkað niður í 32% árið 2006.

 

Um 45% stráka segjast oft eða nær alltaf eyða tíma með foreldrum sínum um helgar og er það hlutfall hærra en annars staðar á landinu, en stúlkur á norðanverðum Vestfjörðum eru síður með foreldrum sínum um helgar en stúlkur annars staðar á landinu.

 

Unglingar á norðanverðum Vestfjörðum telja síður að foreldrar þeirra fylgist með því hverja þeir umgangist utan skólatíma en unglingar annars staðar á landinu. Rétt um fjórðungur stúlkna og tæplega 40% drengja telja svo vera, en landsmeðaltalið er annars vegar 74% fyrir stúlkur og 60% fyrir drengi.

 

Athygli vekur að talsvert færri drengir á norðanverðum Vestfjörðum hyggjast fara í framhalds- eða háskólanám miðað við landið í heild, en framtíðarhugmyndir stúlkna á þessu svæði um framhaldsnám eru í samræmi við landsmeðaltal.


Meira úr "Samstarfsverkefni"

Háskólasamfélagið

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón