Rannsóknir
Útibú Hafrannsóknarstofnunnar og Matís, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands, Náttúrustofa Vestfjarða sem og ýmis fyrirtæki á Vestfjörðum fást við margvíslegar rannsóknir, svo sem á sjávarútvegi og afurðum hans. Þar á meðal má nefna rannsóknir á veiðafæratækni, fiskeldi, burðarþoli vistkerfa og umhverfis- og fjarðarannsóknir. Þessar rannsóknir hafa allar snertifleti við helstu umfjöllunarefni meistaranáms Háskólasetursins í haf- og strandsvæða-stjórnun. Háskólasetur Vestfjarða, Fjórðungssamband Vestfirðinga, fyrir hönd sveitarfélaga á Vestfjörðum, og Teiknistofan Eik hafa hrint af stað stóru rannsóknarverkefni um nýtingaráætlun strandsvæða (marine spatial planning). Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands sinnir rannsóknum á ofanflóðum og er staðsett í sama húsnæði og Háskólasetur, líkt og flestar stofnanirnar sem hér eru nefndar. Þar af leiðandi er til staðar, í Háskólasetrinu, umhverfi þar sem rannsóknarmenn, gestakennarar og nemendur geta auðveldlega hist.
Háskólasetrið tengist líka alþjóðlegum samstarfsverkefnum, svo sem aquaTNet um kennslu á sviði fiskeldis og UArctic Thematic Network on Coastal and marine issues sem og TN on Local Governance á vegum Norðurslóðaháskólans (University of the Arctic).
Háskólasetur Vestfjarða vill auðvelda innlendum og erlendum rannsóknarmönnum og rannsóknarnemum að tengjast vestfirskum málefnum á öllum sviðum. Háskólasetrið reynir eftir fremsta megni að tengja áhugasama inn í viðeigandi rannsóknarumhverfi á svæðinu.