Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Rannsóknir

Háskólasetur Vestfjarða vinnur náið með rannsóknarstofnunum á Vestfjörðum sem og utan þeirra. Við Háskólasetrið sjálft eru ekki ráðnir rannsóknarmenn, en meistaranemar við Háskólasetrið bæta árlega við þekkingu á sviði haf- og strandsvæðastjórnunar með lokaritgerðum sínum. Í meistaranáminu kenna yfirleitt virtir háskólakennarar sem koma víða að og skapa tengsl á milli Háskólasetursins og eigin rannsóknarumhverfis.

 

Útibú Hafrannsóknarstofnunnar og Matís, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands, Náttúrustofa Vestfjarða sem og ýmis fyrirtæki á Vestfjörðum fást við margvíslegar rannsóknir, svo sem á sjávarútvegi og afurðum hans. Þar á meðal má nefna rannsóknir á veiðafæratækni, fiskeldi, burðarþoli vistkerfa og umhverfis- og fjarðarannsóknir. Þessar rannsóknir hafa allar snertifleti við helstu umfjöllunarefni meistaranáms Háskólasetursins í haf- og strandsvæðastjórnun. Á næstunni hyggjast Háskólasetur Vestfjarða, Fjórðungssamband Vestfirðinga, fyrir hönd sveitarfélaga á Vestfjörðum, og Teiknistofan Eik hrinda af stað stóru rannsóknarverkefni um nýtingaráætlun strandsvæða (marine spatial planning). Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands sinnir rannsóknum á ofanflóðum og er staðsett í sama húsnæði og Háskólasetur, líkt og flestar stofnanirnar sem hér eru nefndar. Þar af leiðandi er til staðar, í Háskólasetrinu, umhverfi þar sem rannsóknarmenn, gestakennarar og nemendur geta auðveldlega hist.

 

Háskólasetrið tengist líka alþjóðlegum samstarfsverkefnum, svo sem aquaTNet um kennslu á sviði fiskeldis og UArctic Thematic Network on Local Governance á vegum Norðurslóðaháskólans (University of the Arctic) sem og rannsóknarverkefni UArctic Virtual Learning Tools.

 

Háskólasetur Vestfjarða hefur reglulega skipulagt rannsóknarþing og ráðstefnur um málefni tengd strandsvæðastjórnun, veiðafæratækni, jaðarsvæðum og hnattvæðingu. Má þ.á m. nefna:

 

Háskólasetur Vestfjarða vill auðvelda innlendum og erlendum rannsóknarmönnum og rannsóknarnemum að tengjast vestfirskum málefnum á öllum sviðum. Háskólasetrið reynir eftir fremsta megni að tengja áhugasama inn í viðeigandi rannsóknarumhverfi á svæðinu.

Háskólasamfélagiđ

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón