Fréttir
Er persónuleg læknismeðferð möguleiki í okkar framtíð?
Dr. Betty Gallucci verður í Vísindaporti föstudaginn 3. febrúar þar sem hún mun fjalla um möguleika læknisfræðinnar á persónulegri meðferð. Möguleikinn á persónulegri lyfjagjöf varð að veruleika með tilkomu þekkingar á genamengi mannsins. Lyfjaerfðafræðin lofaði að sníða ávísun lyfja að hverjum einstaklingi fyrir sig. Með því að þekkja erfðafræði s......
Meira
Ráðstefnur og fyrirlestrar
Háskólasetur Vestfjarða stendur fyrir ráðstefnum og fyrirlestrum af öllum stærðum og gerðum. Allt frá stórum alþjóðlegum ráðstefnum á sviði menningar, náttúru og vísinda til smærri óformlegra erinda um allt á milli himins og jarðar.
Meðal fastra liða má nefna Vísindaport Háskólaseturs sem er óformlegur umræðutími í hádeginu á föstudögum. Vísindaportið er vettvangur til að kynna í stuttu máli rannsóknir eða annað efni sem unnið er að eða er lokið.
Á öðrum vettvangi kynna nemendur rannsóknarritgerðir sínar og kennarar og rannsóknarmenn ræða nýjustu þróun á sérsviði sínu hverju sinni.