Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Haf- og strandsvæðastjórnun

Mynd: Ágúst Atlason
Mynd: Ágúst Atlason

Í meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórnun kynnast nemendum ýmsum aðferðum við stjórnun haf- og strandsvæða út frá efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum forsendum. Inntak námsins er í samræmi við áherslur Evrópusambandsins í haf- og strandsvæðastjórnun (EU focus on coastal zones).


Námið samanstendur af 7 kjarnaáföngum og 8 valáföngum auk lokaverkefnis. Kjarnagreinarnar eru kenndar í upphafi námsins enda eru þær grunnur að síðari áföngum. Í náminu er lögð áhersla á stjórnun, en slíkt er nýjung hér á landi við nýtingu umhverfis og auðlinda. Hver áfangi hefur þverfaglega nálgun sem veitir nemendum betri tengingu á milli áfanga. Áhersla er lögð á lausn raunverulegra vandamála, enda er námið hagnýtt. Slíkar lausnir byggja oft á lögmálum sjálfbærrar þróunar. Kjarninn samanstendur af eftirfarandi fræðigreinum: Líffræði, vistfræði, efnafræði, jarðfræði, haffræði, jarðeðlisfræði, landafræði, verkfræði, félagsfræði, siðfræði, mannfræði, lögfræði, stjórnmálafræði, hagfræði og skipulagsfræði.


Að neðan má finna námskeiðslýsingar fyrir öll námskeið en hér má einnig nálgast yfirlit yfir kennsluáætlun.

  • Öll námskeið á meistarastigi hjá Háskólasetrinu eru opnir þátttakendum frá háskólum og atvinnulífi.
  • Öll námskeiðin eru kennd í lotum á haust-, vor- og sumarönn.
  • Öll námskeiðin eru kennd á ensku og er námsmanna- og kennarahópurinn alþjóðlegur.
  • Öll námskeiðin henta vel til endurmenntunar.
  • Öll námskeiðin hafa þverfaglega nálgun og höfða því til fólks með ólíkan bakgrunn og úr mörgum starfsstéttum.

Á stuttum tíma hefur skapast frjótt námsumhverfi á Ísafirði sem dregur fólk víða að.

 

Starfsfólk Háskólaseturs aðstoðar þátttakendur í námskeiðum við að finna hentuga gistingu.

 

Nánari upplýsingar um skipulag má nálgast í kennsluáætlun.

 

Við inntöku í meistaranámið sjálft er krafist grunn háskólaprófs (BA, BS, BEd eða sambærilegt). Við inntöku í einstök námskeið getur starfsreynsla eða önnur menntun á sviði tiltekinna námskeiða vegið upp formlegt BS/BA-próf. Einnig geta nemendur á efstu stigum grunnnáms fengið inntöku í einstök námskeið, ef þeir hafa faglegan bakgrunn á viðkomandi sviði. Sjá nánar undir forkröfur.

 

Námskeið uppfylla kröfur margra stéttarfélaga um námsstyrki.

Háskólasamfélagið

„Auk samnemenda minna í CMM meistaranáminu mun ég sakna andrúmsloftsins í Háskólasetrinu. Stundir sem heilluðu tengjast oftast vettvangsferðum, t.d. að læra hvernig fiskeldi virkar í raun og veru með því að hoppa milli kvíanna og hjálpa til við að færa fiskinn á milli þeirra."

Astrid Dispert, Þýskalandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón