Stafræn ljósmyndun
Kennari: Ágúst G. Atlason, áhugaljósmyndari og margmiðlunarhönnuður
Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði í stafrænni ljósmyndun, hvernig á að nota myndavélina og hvaða möguleika ýmsar stillingar bjóða upp á. Í framhaldi af því verða þessar aðferðir prófaðar úti á vettvangi. Að lokum verða möguleikar einfaldra myndvinnsluforrita og ljósmyndasíðna eins og flickr.com skoðaðir. Athugið að nemendur þurfa að koma með stafræna myndavél á námskeiðið, það má vera hvernig vél sem er.