Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Orð eru sprengjur og setningar sverð

Davíð Stefánsson
Davíð Stefánsson
Kennari: Davíð Stefánsson, ljóðskáld og bókmenntafræðingur

Hvað er tungumálið? Til hvers er það notað? Af hverju heita allar vörur svona jákvæðum nöfnum? Af hverju eru sum orð vinsælli en önnur? Segir eitt orð meira en þúsund myndir? Getum við innbyrt endalaust magn af skilaboðum á einum degi - eða kemur að því að heilinn fær nóg?


Námskeiðið byggir á bókinni Tvískinnu og hefur tvö markmið: Að kenna gagnrýninn lestur og skapandi skrif. Tungumálið er valdatæki og það er hægt að nota til að hafa áhrif á manneskjur. Við lesum í táknskilaboðin í kringum okkur, án þess að fatta það, og því síast inn í hausinn allskyns áróður. Með þjálfun er hægt að öðlast betri meðvitund um skilaboðin og greina bullið frá ruglinu.


Allir geta skapað og skrifað. Svo einfalt er það. Það er bara spurning um vilja, ákvörðun og þjálfun. Á námskeiðinu verða iðkaðar skemmtilegar æfingar sem koma sköpuninni af stað og nemendum býðst að vinna með eigin hugmyndir að ljóðum, kvikmyndahandritum eða öðrum skálduðum texta.


Meira úr "Námskeiðslýsingar"

Háskólasamfélagið

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón