Landslagshönnun
Græna netið - skipulag útivistarsvæða
Fjallað verður um skipulag og uppbyggingu útivistasvæða í borgum og bæjum. Útivistarsvæði eru m.a. íþróttasvæði, leiksvæði, skrúðgarðar, náttúrusvæði og önnur opin svæði. Þegar góð tenging er milli útivistarsvæða innbyrðis og við hverfi bæjarins er talað um grænt net. Fjallað verður um mismunandi þarfir og atferli íbúa og um mikilvægi græna netsins á heilsu og líðan þeirra.
- Kennari: Erla Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt