Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Dýravistfræði/Þróunarvistfræði

Fjallað verður um hvernig dýr þróast. Hugtök eins og þróun, aðlaganir, búsvæði, vistkerfi og breytileiki verða kynnt. Er lífríkið sem við sjáum í dag stöðugt? Hvaða breytingar eru líklegar til að verða á því? Hvað taka breytingar á lífverum langan tíma og hvað veldur þeim? Þáttur umhverfis og tilviljana í þróun.

Efnið verður kynnt með verklegri æfingu þar sem búsvæði og lífverur í fersku vatni og sjó verða skoðuð. Búsvæði verða könnuð og kortlögð með neðansjávarmyndavél. Gildrur og net lögð og vitjað daginn eftir. Útlit og líffæri fiska (eða annara dýra) sem veiðast verður kannað og sett í samhengi við mismunandi lífsskilyrði. Umræður um þróun lífvera að umhverfi sínu.

- Kennari: Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum

Meira úr "Námskeiðslýsingar HUF"

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón