Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Listaháskóli unga fólksins

Frá útskrift Háskóla unga fólksins 2008
Frá útskrift Háskóla unga fólksins 2008
Listaháskóli unga fólksins verður haldinn dagana 8. - 12. júní 2009 á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði. Í boði verða fjölbreytt námskeið í ólíkum listgreinum fyrir krakka fædd 1993-1997. Kennarar námskeiðanna eru starfandi listamenn á sínum sviðum. Listaháskóli unga fólksins er samstarfsverkefni Háskólaseturs, Menningarráðs Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Alls verða í boði fimm eins dags námskeið á ólíkum listsviðum, en sérstök áhersla er lögð á nám í skapandi listgreinum sem alla jafna standa ekki til boða. Í lok síðasta skóladagsins, föstudagsins 12. júní, verður haldin brautskráningarhátíð þar sem afrakstur skólastarfsins verður kynntur og brautskráningarskjal afhent.

Nú er endanlega stundaskrá skólans komin á vefinn.

Verð fyrir öll námskeiðin fimm er kr. 12.000 en einnig er hægt að taka stök námskeið og er verð kr. 3000 fyrir hvert námskeið. Boðið er upp á 30% systkinaafslátt. Skráning fer fram hér á vefnum.


Námskeiðslýsingar og stundatöflur munu birtast hér á vefnum innan skamms ásamt skráningareyðublaði.


Nánari upplýsingar veitir Ingi Björn Guðnason í síma 450-3042 eða í netfanginu ingi@hsvest.is

Háskólasamfélagiđ

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón