Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Akademísk vinnubrögð

Stofnun fræðasetra HÍ hyggst í bjóða upp á fjarnámskeið í Akademískum vinnubrögðum í samstarfi við fræðslu- og símenntunarstöðvar á landsbyggðinni á vormisseri 2007.

Kennari á námskeiðinu er Ólína Þorvarðardóttir, Dr. Phil. Hún mun kenna frá Háskólasetri Vestfjarða með aðstoð fjarfundabúnaðar og á kennsluvef HÍ.

 

Námskeiðið hefst með fjarfundi föstudaginn 9. febrúar kl. 18:00. Eftir það er gert ráð fyrir fjarfundum föstudagana 23. feb., 9. mars, 23. mars og 13. apríl eftir nánara samkomulagi við nemendur. Námskeiðslok eru áætluð 13. apríl.

 

Um er að ræða tilraunaverkefni í samstarfi Stofnunar fræðasetra HÍ, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Háskólaseturs Vestfjarða og fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni.

 

Námskeiðið er öllum opið allstaðar að af landinu. Það er sérstaklega ætlað þeim sem hyggjast hefja nám á háskólastigi en getur nýst ýmsum öðrum, eins og t.d. þeim sem þurfa að semja skriflegar greinargerðir eða álíka, flytja erindi og fyrirlestra o.s.frv.

 

Tekið verður við skráningum til 6. febrúar n.k. hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða s. 4565025, netfang frmst@frmst.is eða á netinu www.frmst.is.

 

Upplýsingar um námskeiðið má nálgast á heimasíðum Háskóla Íslands, Háskólaseturs Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og annarra fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.

 

Námskeiðslýsing
Þjálfun og kennsla í akademískum vinnubrögðum, einkum við samningu og frágang ritgerða, erinda og verkefna. Gerð verður grein fyrir helstu rannsóknaraðferðum, eigindlegum og megindlegum, gildi gagnrýnnar hugsunar og þess að setja skoðanir fram á rökvísan og aðgengilegan hátt. Heimildaöflun, úrvinnsla heimilda og skráning þeirra. Ritun, stíll og frágangur. Framsögn og framsetning fyrirlestra í mæltu og rituðu máli. Byggt verður á bókum og greinum sem efnið varða auk æfinga og verkefna undir stjórn kennara.

 

Námskeiðið samsvarar 18 kennslustundum. Gert er ráð fyrir 4-5 fyrirlestrum og/eða fyrirspurnartímum í gegnum fjarfundabúnað auk samskipta á kennsluvef. Námsgögnum og verkefnum verður dreift gegnum kennsluvef háskólans.

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón