Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Undirbúningsnámskeið í hjúkrunarfræði

Undirbúningsnámskeið fyrir verðandi hjúkrunarfræðinema við H.A.

Fyrirkomulag: Kennsla verður á þriðjudögum kl. 17-19 tímabilið 22.janúar - 29.apríl. Kennsla fer fram í Háskólasetri Vestfjarða.

Skráning: Í síma 450 3041 eða í tölvupósti marthalilja@hsvest.is

Kennsluefni: Samkvæmt bókalista hjúkrunarfræðideildar á haustmisseri 2007

Hvað verður kennt: Farið verður yfir þær greinar sem eru kenndar á haustmisseri 2008.

Hjúkrunarfræði 1, Heimspeki , Líffærafræði 1, Vöxtur og þroski og Vefja - og frumulíffræði. Hver grein verður tekin fyrir 2 - 3 þriðjudaga í röð - síðan verður gert verkefni úr efninu sem nemendur skila inn. Ekki tekst að fara mjög djúpt í efnið en það verður kynnt fyrir nemendum þannig að þeir verði undir það búnir að hefja nám í hjúkrun við HA haustið 2008 og standist samkeppnispróf í desember 2008.

Nánari lýsing á fyrirkomulagi kennslu:

Tími 1. Kynning á fyrirkomulagi kennslunar, bækur kynntar og farið yfir áætlun vetrarins.

Tími 1. Hjúkrunarfræði 1
Tími 2. Hjúkrunarfræði 1
Tími 3. Hjúkrunarfræði 1

Tími 4. Heimspeki
Tími 5. Heimspeki

Tími 6. Líffærafræði
Tími 7. Líffærafræði
Tími 8. Líffærafræði

Tími 9. Vöxtur og þroski
Tími 10. Vöxtur og þroski

Tími 11. Páskafrí

Tími 12. Vefja - og frumulíffræði
Tími 13. Vefja - og frumulíffræði

Tími 14. Heimsókn frá útskriftarnemum úr H.A., heimsókn frá H.A.

Tími 15. Efnið samandregið - farið verður yfir hvernig samkeppnispróf gengur fyrir sig, reglur og framkvæmd prófsins.

Akademísk vinnubrögð

Stofnun fræðasetra HÍ hyggst í bjóða upp á fjarnámskeið í Akademískum vinnubrögðum í samstarfi við fræðslu- og símenntunarstöðvar á landsbyggðinni á vormisseri 2007.

Kennari á námskeiðinu er Ólína Þorvarðardóttir, Dr. Phil. Hún mun kenna frá Háskólasetri Vestfjarða með aðstoð fjarfundabúnaðar og á kennsluvef HÍ.

 

Námskeiðið hefst með fjarfundi föstudaginn 9. febrúar kl. 18:00. Eftir það er gert ráð fyrir fjarfundum föstudagana 23. feb., 9. mars, 23. mars og 13. apríl eftir nánara samkomulagi við nemendur. Námskeiðslok eru áætluð 13. apríl.

 

Um er að ræða tilraunaverkefni í samstarfi Stofnunar fræðasetra HÍ, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Háskólaseturs Vestfjarða og fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni.

 

Námskeiðið er öllum opið allstaðar að af landinu. Það er sérstaklega ætlað þeim sem hyggjast hefja nám á háskólastigi en getur nýst ýmsum öðrum, eins og t.d. þeim sem þurfa að semja skriflegar greinargerðir eða álíka, flytja erindi og fyrirlestra o.s.frv.

 

Tekið verður við skráningum til 6. febrúar n.k. hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða s. 4565025, netfang frmst@frmst.is eða á netinu www.frmst.is.

 

Upplýsingar um námskeiðið má nálgast á heimasíðum Háskóla Íslands, Háskólaseturs Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og annarra fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.

 

Námskeiðslýsing
Þjálfun og kennsla í akademískum vinnubrögðum, einkum við samningu og frágang ritgerða, erinda og verkefna. Gerð verður grein fyrir helstu rannsóknaraðferðum, eigindlegum og megindlegum, gildi gagnrýnnar hugsunar og þess að setja skoðanir fram á rökvísan og aðgengilegan hátt. Heimildaöflun, úrvinnsla heimilda og skráning þeirra. Ritun, stíll og frágangur. Framsögn og framsetning fyrirlestra í mæltu og rituðu máli. Byggt verður á bókum og greinum sem efnið varða auk æfinga og verkefna undir stjórn kennara.

 

Námskeiðið samsvarar 18 kennslustundum. Gert er ráð fyrir 4-5 fyrirlestrum og/eða fyrirspurnartímum í gegnum fjarfundabúnað auk samskipta á kennsluvef. Námsgögnum og verkefnum verður dreift gegnum kennsluvef háskólans.

Háskólasamfélagið

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón