Háskóli unga fólksins 2008
Dagana 9.-13. júní 2008 býður Háskólasetur Vestfjarða háskólanám fyrir ungt fólk. Unglingum fæddum 1992-96 býðst þá að sækja fjölda stuttra námskeiða þar sem kennarar á háskólastigi fjalla um heima og geima.
Hver nemandi getur tekið allt að sex námskeið, svo að eitthvað nýtt og skemmtilegt er á stundatöflunni á hverjum degi. Í lok síðasta skóladagsins, föstudagsins 13. júní, verður haldin brautskráningarhátíð þar sem afrakstur skólastarfsins verður kynntur og brautskráningarskjal afhent.
Verð: kr. 12000 fyrir sex námskeið. Einnig er hægt að taka stök námskeið og er þá kostnaðurinn kr. 2500 fyrir hvert námskeið.
Boðið er upp á 30% systkinaafslátt. Umsóknareyðublöð má finna í valmyndinni hér á vinstri hlið eða með því að smella hér.
Athugið að starfsmenn Háskólaseturs geta aðstoðað við að finna gistingu fyrir nemendur utan norðanverðra Vestfjarða.
Í boði er gisting í húsi miðsvæðis á Ísafirði, Túngötu 5. Um er að ræða 5 herbergja hús þar sem unglingarnir geta verið 1 eða 2 í herbergi. Innifalið er heimilismorgunverður og mun húseigandi og starfsmenn Háskólaseturs hafa umsjón og eftirlit með nemendum á meðan á námskeiðunum stendur. Verðið fyrir 4 nætur er kr. 5000.
Einnig geta starfsmenn Háskólaseturs aðstoðað með að finna gistingu fyrir nemendur í heimahúsi ef óskað er eftir því.
Nánari upplýsingar í síma 450 3041 eða í tölvupósti marthalilja@hsvest.is.
Með því að smella á námskeiðsheitin hér fyrir neðan má nálgast námskeiðslýsingar - vinsamlegast athugið að skoða stundaskránna vel áður en námskeið eru valin til að minnka líkur á árekstrum, en sumir áfangar eru kenndir á sama tíma og aðrir.
- Stundaskrá