Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Vestfirðir á miðöldum

Kennari: Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands.

Um er að ræða þriggja kvölda námskeið þar sem fjallað verður um Vestfirði á miðöldum og er námskeiðið í tengslum við verkefnið Vestfirðir á miðöldum.

Námskeiðið skiptist í þrennt:

 

1. Landnám og söguöld
27. mars kl. 19:30-21:00
Farið verður yfir heimildir um landnám, gerð grein fyrir uppgreftrinum í Vatnsfirði í Djúpi og öðrum fornleifafundum fyrir vestan. Fjallað verður um Íslendingasögur sem gerast á Vestfjörðum, einkenni þeirra og hvað þær geta sagt okkur um lífið fyrir vestan í kringum kristni-töku.

 

2. Baráttan um Vestfirði á Sturlungaöld
29. mars kl. 19:30-21:00
Samtíðarsögur segja frá miklum átökum um yfirráð yfir Vestfjörðum á Sturlungaöld. Fyrst voru það heimamenn sem deildu, m.a. Hrafn Svein-bjarnarson og Þorvaldur Snorrason Vatnsfirðingur. Síðan færðust þessi átök út fyrir kjálkann. Þá deildu Sturlungar innbyrðis eða við Ásbirninga. Þessi saga verður rakin og reynt að rýna í hugsanlegar ástæður fyrir því hvers vegna Vestfirðir urðu bitbein í átökum valdamanna á þessu skeiði Íslandssögunnar.

 

3. Tími ríkra manna á síðmiðöldum
30. mars kl.19:30-21:00
Á síðmiðöldum (14.-16.öld) safnaðist mikill auður á hendur fárra manna á Vestfjörðum. Rakin verður saga þessara manna, Eiríks Sveinbjarnarsonar í Vatnsfirði, Björns Jórsalafara, Guðmundar Arasonar á Reykhólum, o.fl og ræddar hugmyndir fræðimanna um uppruna þessa auðs og hvað varð af honum.


Meira úr "Eldri námskeið"

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón