Studium generale
Í kynningarnáminu eiga námsmenn að fá tækifæri til að kynnast háskólunum og námi á háskólastigi, ásamt því að háskólar kynni sig fyrir tilvonandi námsmönnum. Háskólasetur heldur utan um námskeiðin og sér um staðbundna námshluta á Ísafirði. Námið er einingarbært og þess vegna þurfa námsmenn að skrá sig i viðkomandi háskóla. Auk þess er boðið upp á námskeið um akademisk vinnnubrögð og námstækni auk námskynninga. Námskeiðin eru grunnnámskeið við viðkomandi háskóla og eiga að nýtast sem flestum.
Flestir háskólar/fög skrá ekki námsmenn á vormisseri og enginn háskólanna skráir námsmenn í stök námskeið. Háskólinn í Reykjavík og Viðskiptaháskólinn á Bifröst bjóða upp á sérverð fyrir studium generale en Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Kennaraháskóli Íslands hafa sameinast um skráningu, sem fer fram í Nemendaskrá Háskóla Íslands og er skráningargjald það sama, óháð því, hvort námsmaður taki eitt námskeið, tvö eða öll þrjú. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá, sem hafa áhuga á námi, en eru ekki komnir í gang og fyrir þá, sem vilja spreyta sig í námi, en þurfa að bíða til haustsins með innritun. Þetta er líka tækifæri fyrir þá, sem vilja taka stakt námskeið, en geta ekki hugsað sér eða leyft sér að fara í fullt nám.
Námskeiðin í studium generale eru þau sömu og aðrir taka í viðkomandi háskóla. Námskeiðin eru kennd í gegnum fjarnám, en Háskólasetur Vestfjarða leggur til kennara fyrir staðbundna kennslu, þó með fyrirvara um lágmarks þáttöku. Þessi kennsla fer fram í húsakynnum Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði. Námsmenn skrá sig i viðkomandi háskóla, en Háskólasetur hefur samið við háskólana sérstaklega fyrir þetta kynningarnám. Einingar eru metnar af viðkomandi háskóla í viðkomandi grein, ef nemendur hyggja á nám í viðkomandi grein seinna. Tilvonandi námsmenn geta því nú þegar áunnið sér einingar í sínu framtíðarfagi.
Studium generale gengur þó út á meira en það að safna einingum: Í studium generale kynnast námsmenn akademískum vinnubrögðum, ýmsum fagsviðum og læra þar með fyrir margs konar nám og ekki síst fyrir lífið.