Samningatækni
Námskeið í boði símenntunar H.R.
3. apríl kl. 16:00-20:00
Kennari: Aðalsteinn Leifsson, aðjúnkt við viðskiptadeild HR
Stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja eru daglega í aðstæðum þar sem grundvallarþekking og þjálfun í samningatækni kemur að góðum notum en fæstir nálgast samningaviðræður með skipulögðum hætti. Þekking á grundvallaratriðum í samningatækni og þjálfun í notkun sannreyndra aðferða skila sér fljótt í bættum árangri ? þar sem viðmið fyrir árangur er ekki aðeins hagstæðari niðurstaða samningaviðræðna heldur einnig betri samskipti við samstarfsaðila til lengri tíma. Í námskeiðinu er lögð höfuðáhersla á að veita þátttakendum hagnýta þekkingu og þjálfun í samningagerð sem kemur að notum þegar í stað í samskiptum á vinnustað og annars staðar. Markmiðið er að þátttakendur tileinki sér einföld, skipuleg og heiðarleg vinnubrögð sem skila sér í hagstæðari samningum. Fyrst er fjallað um algengar tilhneigingar sem árangursríkir samningamenn verða að þekkja og varast. Síðan er farið í einfaldar samningaviðræður, t.a.m. um laun eða verð á fasteign/bíl. Þaðan er haldið á dýpri mið og farið yfir hagnýt atriði til að nýta á mismunandi stigum flóknari samningaviðræðna ? a) undirbúning, b) rökræður, c) tillögugerð og d) lok samninga.