Samfélagstúlkun
Túlkun í Heilbrigðiskerfinu er námskeið í nýrri námsleið Háskóla Íslands í samvinnu við Alþjóðahús og Fjölmenningarsetur Íslands/Háskólasetur Vestfjarða.
Hagnýtt nám í Samfélagstúlkun og Fjölmenningu
Með hraðvaxandi fjölgun innflytjenda frá ýmsum heimshornum hefur þörf fyrir túlka á fjölda erlendra mála aukist gríðarlega. Þetta stafar m.a. af lagaskyldu til að útvega túlka við tilteknar aðstæður á sviðum dóms-, heilbrigðis-, skóla- og félagsmála. Það hlýtur einnig að teljast hluti af viðleitni þjóðarinnar að gefa innflytjendum aukin tækifæri til aðlögunar með því að auðvelda samskiptin við íslensk stjórnvöld.
Hugvísindadeild Háskóla Íslands vill leggja sitt af mörkum til að mennta tiltekinn hóp virkra innflytjenda sem náð hefur góðum tökum á íslensku og þekkir innviði íslensks samfélags nægilega vel til að miðla þeirri þekkingu til samlanda sinna og annast samskipti þeirra við Íslendinga þegar þörf krefur. Þetta er orðið ákaflega brýnt vegna fjölda útlendinga sem hér eru búsettir og einnig þeirra sem hér ferðast um landið á ári hverju, en þeir eru orðnir umtalsvert fleiri en íbúar landsins.
Námið er samvinnuverkefni Hugvísindadeildar HÍ, Alþjóðahússins, Fjölmenningarseturs Íslands og Háskólaseturs Vestfjarða. Námið er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi og verðandi túlka í málum sem ekki eru kennd við Háskóla Íslands og það verður aðeins í boði ef til þess fæst nauðsynlegt fjármagn.
Námið er 45 eininga nám á grunnstigi og veitir diplóma að því loknu. Námið er þrískipt, einn þáttur snýst um túlkunarfræði, einn þáttur snertir íslensku og íslenskt samfélag og einn þáttur verður verklegur. Miðað er við að nemendur taki um 15 einingar á hverju sviði að jafnaði, en unnt verður þó að hafa sveigjanleika þannig að taka megi 10-20 einingar á hverju sviði í samráði við leiðbeinanda.
Námstilhögun
Námið, sem er 45 eininga nám á grunnstigi og veitir diplóma að því loknu, er samvinnuverkefni Hugvísindadeildar HÍ, Alþjóðahúss Rauða krossins, Fjölmenningarseturs Íslands og Háskólaseturs Vestfjarða. Kennsla í verklegum þáttum fer fram hjá samstarfsaðilunum en fræðileg námskeið (í túlkun og íslensku) eru kennd við Háskóla Íslands. Einnig verður boðið upp á ýmis námskeið í fjarkennslu.
Námið er þrískipt: Einn þáttur snýst um túlkunarfræði, einn þáttur snertir íslensku og íslenskt samfélag og einn þáttur verður verklegur. Miðað er við að nemendur taki um 15 einingar á hverju sviði að jafnaði, en unnt verður þó að hafa sveigjanleika þannig að taka megi 10-20 einingar á hverju sviði í samráði við leiðbeinanda.
Markmið og kröfur
Samfélagstúlkun fer fyrst og fremst fram í heilbrigðis- og skólakerfi, dómskerfi og félagsþjónustu. Markmiðið með þessu námi er að mennta tiltekinn hóp virkra innflytjenda sem náð hefur góðum tökum á íslensku og þekkir innviði íslensks samfélags nægilega vel til að miðla þeirri þekkingu til samlanda sinna og annast samskipti þeirra við Íslendinga þegar þörf krefur. Þetta er orðið ákaflega brýnt vegna fjölda útlendinga sem hér eru búsettir og einnig þeirra sem hér ferðast um landið á ári hverju, en þeir eru orðnir umtalsvert fleiri en íbúar landsins. Forkröfur eru ígíldi stúdentsprófs og löng reynsla af túlkun hér á landi. Góð kunnátta í móðurmáli og íslensku nauðsynleg.
Hagnýtt gildi
Nám í samfélagstúlkun og fjölmenningu hefur ekki aðeins hagnýtt gildi fyrir nemendur sem það stunda og verða sérfræðingar í að miðla milli menningarheima á sviði einstaklingssamskipta heldur má líta á slíkt nám sem mikilvægan þátt í aðlögun samfélagsins og einstaklinganna að veruleika fjölmenningarinnar.
Innflytjendur nálgast brátt 10% af fjölda íbúa og eigi samskiptin milli hópa og einstaklinga að ganga sem best verður að vinna að því að gera samskiptin kleif og sem greiðust. Auk þess eru íslensk yfirvöld skyldug skv. lögum til þess í mörgum tilvikum að bjóða upp á túlkun. Það er því þörf fyrir æ fleira kunnáttufólk á þessu sviði. Það hefur alltaf verið heppilegra að fyrirbyggja misskilning en að leiðrétta hann eftir á.
Vel menntaðir samfélagstúlkar nýtast í heilbrigðis- og skólakerfi, dómskerfi og félagsþjónustu. Þeir geta auðveldað atvinnulífinu störf sín við leit að hæfu fólki og miðlað upplýsingum til þeirra sem nýta sér þjónustu þess. Góðir samfélagstúlkar auðga samfélagið með auðveldari samskiptum.
Námskeiðið Túlkun í heilbrigðiskerfi
Námskeiðið Túlkun í heilbrigðiskerfi er eitt af verklegu námskeiðunu m og verður haldið á Ísafirði við Háskólasetur Vestfjarða og í náinni samvinnu við Fjölmenningarsetur Íslands. Kennari er Rúnar Helgi Haraldsson, M.A. í heilbrigðismannfræði frá School of Oriental and African Studies, University of London. Ferilskrá Undirbúningur fer fram á netinu. Námsmenn eru skráðir við Háskóla Íslands og geta nálgast allar upplýsingar á vef námskeiðsins í Uglu-innra kerfi HÍ. Hluti námskeiðsins fer fram á Fjórðungsjúkrahúsinu á Ísafirði.