Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Námskeiđ

Háskólasetur Vestfjarða hefur það að markmiði að standa að fjölbreyttum námskeiðum sem í flestum tilfellum veita einingar á háskólastigi. Námskeiðunum er einnig ætlað að gefa þeim sem þegar hafa menntun á háskólastigi tækifæri til endurmenntunar.


Námskeiðin eru ýmist haldin af Háskólasetrinu sjálfu eða í samstarfi við aðrar háskólastofnanir, félög eða stofnanir. Til dæmis má nefna sumarháskóla á Hrafnseyri í samstarfi við Safn Jóns Sigurðssonar, námskeið í akademískum vinnubrögðum í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Stofnunar fræðasetra HÍ, auk þess sem Símenntun Háskólans í Reykjavík hefur haldið námskeið í Háskólasetrinu. Einnig hefur Háskólasetrið komið að kennslu og hýsingu stakra námskeiða við íslenska og erlenda háskóla.

Háskólasamfélagiđ

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón