Uppbygging námsins
Inntökuskilyrði
Skilyrði fyrir inntöku í námið er að umsækjandinn hafi lokið grunnháskólagráðu og gildir einu hvort um er að ræða BA, BSc eða BEd. Það er þó lagt áherðslu á að umsækjandinn rökstyðji val sitt og væntningar með hlíðsjón til fyrri náms og reynslu.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublaði bæði rafrænt og í pdf á vefsíðu Háskólaseturs.
Uppbygging náms
Námið er 120 ECTS nám á meistrastigi, þar af eru 75 ECTS í formi námskeiða og 45 ECTS í formi lokaritgerðar. Öll námskeið eru kennd í lotum og hefur því misserisskipunin frekar litla merkingu. Námið hefst á haustmisseri með skyldunámskeiðum, en á vor- og sumarmisseri eru valnámskeið í boði. sbr. KENNSLUÁÆTLUN.
Jólafrí: 15.12.11-06.01.13
Páskafrí: 28.03.12-3.04.13
Sumarfrí: Þetta nám gerir EKKI ráð fyrir sumarfrí.
Nemendur geta sérhæft sig með valnámskeiðum og með efnisval lokaritgerðar. Skyldunámskeið og valnámskeið verða að nema samtals 75 ECTS. Námsmönnum stendur til boða að taka valnámskeið hjá öðrum háskóla, ef Meistaranámsnefndin samþykkir.
Námslengd
Haf- og strandsvæðastjórnun er þéttskipað (intensíft) nám með sumarmisseri. Þar sem öll námskeiðin eru kennd í lotum, er námið þétt skipulagt og ekki mikið svigrúm. Lotur eru frá 2 ECTS í allt að 8 ECTS og taka þá eina til fjórar vikur í senn. Nemendur verða að reikna með 25-30 klst. vinnuálagi per ECTS, sem sé 50-60 klst. vinnuálag á viku.
Eftir að námskeiðunum lýkur um mánaðarmótin júni/júli, tekur 45 ECTS meistaraverkefnið við, en 45 ECTS samsvara miðað við ofangreint vinnuálag 1,5 misseri. Námsmenn eru hvattir til að byrja tafarlaust eftir að síðasta námskeiði lýkur með meistaraverkefni og skila þá verkefninu í lok haustmisseris. Með þessu er hægt að klára þetta meistaranám á 18 mánuðum.
Nemendur hafa þó val um að aðlaga námsskipulag að sínum þörfum, en einstaklingsmiðað námsskipulag ætti að setja upp í samráði við fagstjóra og er háð samþykki meistaranámsnefndar.
Námsgráða
Nemendur útskrifast frá Háskólanum á Akureyri með MRM-gráðu (Master of Resource Management), með haf- og strandsvæðastjórnun sem sérsvið.