Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Haf- og strandsvæðastjórnun er krefjandi og metnaðarfullt meistaranám í umhverfis- og auðlindastjórnun sem Háskólasetur Vestfjarða býður upp á í samvinnu við Háskólann á Akureyri.

 

Námið er þverfaglegt og býr nemendur undir fjölbreytt og spennandi störf í einkageiranum svo og hjá hinu opinbera. Verkefnastjórnun á sviði auðlindanýtingar og skipulagsáætlana, umhverfismat, ráðgjafastörf, kennsla og rannsóknarvinna eru meðal starfa sem meistarnámið í haf- og strandsvæðastjónun býr nemendur undir. Námið er alþjóðlegt og kennt á ensku og mun nemenda- og kennarahópurinn samanstanda af innlendum jafnt sem erlendum einstaklingum.

 

Meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun leiðir saman fólk með ólíkan bakgrunn sem deilir með sér reynslu, þekkingu og hugmyndum í litlu, frjóu og skapandi háskólaumhverfi með það að markmiði að finna leiðir til sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Verið velkomin í samfélagið okkar og í hóp sérfræðinga á sviði nýtingar og stjórnunar náttúruauðlinda.

Háskólasamfélagiđ

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón