Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Fagstjóri meistaranámsins

Fagstjóri meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun er Dagný Arnarsdóttir. Hún hefur lokið meistaragráðu í umhverfis- og auðlindastjórnun frá Háskóla Íslands. Í meistararitgerð sinni rannsakaði Dagný félagslegar skyldur stórfyrirtækja á Íslandi og byggði á sambærilegri aðferðarfræði og rannsakendur hafa notað til að greina orðræðu um loftslagsbreytingar í nágrannalöndunum. Samhliða meistaranámi sínu á árunum 2006-2009 starfaði Dagný sjálfstætt að ýmsum verkefnum. Hún starfaði fyrir Sérfræðinganefnd um minnkun nettó losunar gróðurhúsalofttegunda, var í starfsnámi hjá Umhverfisstofnun Íslands þar sem hún lagði til sjálfbærnivísi fyrir Ísland, vann að verkefnum fyrir Félag umhverfisfræðinga á Íslandi, kenndi siðfræðinámskeið hjá Námsflokkkum Reykjavíkur og sem verkefnastjóri við meistaranám í umhverfis- og auðlindastjórnun hjá HÍ. Loks má nefna að Dagný hefur verið virk í félagsstörfum. Veturinn 2007-2008 var hún forseti Gaiu, félags meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum. Í apríl 2011 mun hún taka við formennsku Félags umhverfisfræðinga á Íslandi (FUMÍ).

Dagný hefur starfað sem fagstjóri meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða frá desember 2009.


Fagstjóri meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun hefur eftirfarandi hlutverk:
  • Fagleg umsjón með meistaranáminu, utanumhald og samræming námsskrár
  • Tengiliður milli Meistaranámsnefndar, starfsfólks Háskólaseturs og nemenda í haf- og strandsvæðastjórnun
  • Leggur til ráðningar nýrra kennara, leiðbeinenda og prófdómara, við Meistaranámsnefnd
  • Greiðir fyrir samstarfi og hlúir að tengslaneti vegna námsins, utanumhald kennarahóps
  • Svarar eða kemur áfram öllum spurningum er varða faglega þætti meistaranámsins
  • Hefur yfirlit yfir námsframgangi nemenda, hvort þeir haldi áætlun, bæði í námskeiðum og á þegar kemur að vinnu við lokaritgerðir
  • Hefur umsjón með námsmatsferli lokaritgerða, þar með talið kynningum (fyrirlestrum) og vörnum

Háskólasamfélagiđ

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón