Búsetumöguleikar
Almennt séð er húsnæðisverð á Ísafirði talsvert lægra en á höfuðborgarsvæðinu. Háskólasetur Vestfjarða hefur tryggt fjölbreytta íbúðarmöguleika fyrir námsmenn. Allt frá stökum herbergjum til stærri íbúða fyrir fjölskyldur.
Einnig munu starfsmenn Háskólaseturs kappkosta að finna góðar búsetulausnir sem henta hverjum og einum með tilliti til fjölskylduhags eða annars. Við hvetjum umsækjendur til að hafa samband vakni einhverjar spurningar um húsnæði.