Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Fréttir

Hornstrandir og hvalaskoðun
Í dag, miðvikudaginn 1. febrúar, fara fram tvær kynningar á meistaraprófsritgerðum við Háskólasetur Vestfjarða. Klukkan 14:00 mun Sara Martin kynna ritgerð sína An Assessment of Unregulated Whale Watching Activities on Skjálfandi Bay, Iceland og klukkan 16 kynnir Vilma Inkeri Kuliala ritgerð sína Wilderness and Human Influence in the Hornstrandir N......
Meira

Strandsvæðastjórnun

Haf- og strandsvæðastjórnun er krefjandi og metnaðarfullt meistaranám í umhverfis- og auðlindastjórnun sem Háskólasetur Vestfjarða býður upp á í samvinnu við Háskólann á Akureyri.

 

Námið er þverfaglegt og býr nemendur undir fjölbreytt og spennandi störf í einkageiranum svo og hjá hinu opinbera. Verkefnastjórnun á sviði auðlindanýtingar og skipulagsáætlana, umhverfismat, ráðgjafastörf, kennsla og rannsóknarvinna eru meðal starfa sem meistarnámið í haf- og strandsvæðastjónun býr nemendur undir. Námið er alþjóðlegt og kennt á ensku og mun nemenda- og kennarahópurinn samanstanda af innlendum jafnt sem erlendum einstaklingum.

 

Meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun leiðir saman fólk með ólíkan bakgrunn sem deilir með sér reynslu, þekkingu og hugmyndum í litlu, frjóu og skapandi háskólaumhverfi með það að markmiði að finna leiðir til sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Verið velkomin í samfélagið okkar og í hóp sérfræðinga á sviði nýtingar og stjórnunar náttúruauðlinda.

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón