Tónlistarsköpun
Kennari: Unnur Birna Björnsdóttir, tónlistamaður
Á námskeiðinu munum við meðal annars fara út í náttúruna og hlusta eftir ýmsum hljóðum sem við getum notað í tónsköpun, og gerum tilraunir með að búa til frumleg hljóðfæri úr náttúrulegum og ónáttúrulegum hlutum. Getum við til dæmis endurnýtt niðursuðudósir, áldollur, plastpoka eða mjólkurfernur til að búa til tónlist? Látum hugmyndaflugið ráða!

Við ræðum einnig um hljóðbylgjur og tóna sem búa í öllum hlutum, og skoðum muninn á því að læra tónlist eftir eyranu, nótum eða bókstöfum og finna út hvað hverjum og einum þykir auðveldast.