Íslenska á einni viku
Frekari upplýsingar eru á ensku.
Námskeiðslýsing
Íslenskunámskeið sem er ætlað erlendum stúdentum og borgurum sem vilja kynnast íslensku máli með hraði. Nemendur ljúka samtals 37 fjölbreyttum og áhugaverðum kennslustundum.
Grundvallaratriði í orðaforða verða kennd í gegnum fyrirlestra og æfingar. með mjög lítilli áherslu á málfræði. Lestrar- og skriftarkunnátta verður kennd í gegnum hópavinnu og lausnarleitarnám. Nemendur taka þátt í samtalsæfingum í gegnum tungumálaleiki og lausnarleitarnám við raunverulegar aðstæður. Framburðaræfingar verða fjölbreytilegar og óvenjulegar.
Nemendur sjá tvær íslenskar kvikmyndir sem kennari fylgir úr hlaði með stuttu inngangserindi. Myndirnar verða á íslensku en með enskum texta. Að sýningu lokinni gefst nemendum kostur á að ræða myndina við kennarann.
Afþreyingardagskrá
Þótt tungumála- og menningarnámið sé í aðalhlutverki verður einnig í boði afþreyingardagskrá.
Á Ísafirði eru í boði margskonar afþreying, s.s. skipulagðar ferðir af ýmsu tagi. Þessar ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldinu.
Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika. Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku samfélagi.
Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og borgara og býður nemendur hjartanlega velkomna.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband, islenska@uwestfjords.is.