Menu

University centre

Log in

Webmail

Þriggja vikna námskeið í íslensku máli og menningu

Námskeið í íslensku haldið á Ísafirði dagana 1. - 19. ágúst 2011.

Frekari upplýsingar eru á ensku.



Námskeiðslýsing

Íslenskunámskeið þar sem menningu landsins er fléttað inn í tungumálanámið. Námið er ætlað erlendum borgurum sem áhuga hafa á að læra íslensku.

Nemendur ljúka samtals 96 fjölbreyttum og áhugaverðum kennslustundum, bæði í hefðbundnum kennslustofum og í spennandi dagsferðum um nágrenni Ísafjarðar.

Grundvallaratriði íslenskunnar verða kennd í gegnum fyrirlestra og æfingar. Lestrar- og skriftarkunnátta á stigi A1-A2 verður kennd í gegnum hópavinnu og lausnarleitarnám, til dæmis með því að bera kennsl á lykilorð og orðflokka, svo nemendur geti áttað sig á umfjöllunarefni texta. Nemendur taka þátt í samtalsæfingum í gegnum tungumálaleiki og lausnarleitarnám við raunverulegar aðstæður. Framburðaræfingar verða fjölbreytilegar og óvenjulegar.  Ferð verður farin á söguslóðir Gísla sögu þar sem meðal annars veður boðið upp á einleik Elfars Loga Hannessonar upp úr Gísla sögu.


Vikulega sjá nemendur íslenska kvikmynd sem kennari fylgir úr hlaði með stuttu inngangserindi. Myndirnar verða á íslensku en með enskum texta. Að sýningu lokinni gefst nemendum kostur á að ræða myndina við kennarann.

Afþreyingardagskrá

Þótt tungumála- og menningarnámið sé í aðalhlutverki verður einnig í boði fjölbreytt afþreyingardagskrá.

Á Ísafirði eru í boði margskonar afþreying, s.s. skipulagðaar ferðir af ýmsu tagi.  Þessar ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldinu.

Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug, golfvöllur og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika.  Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku samfélagi.

Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og borgara og býður nemendur hjartanlega velkomna.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband,
islenska@uwestfjords.is.

Our community

"The students here are happy, very open and welcoming. They are an international and eclectic student body - with lots of variety. They invited me to join them for meals and trips. I appreciated their openness as colleagues."
John Nyboer CMM Instructor, Research Associate Simon Fraser University Vancouver, Canada

Announcements

Arctic Frontiers 24.01.2012-28.01.2012, Tromsö
Increased human activity in the Arctic will have significant economic, political, and social implications for Arctic nations, and will impact Arctic ecosystems. It is thus vital to......
More
Vefumsjón