Menu

University centre

Log in

Webmail

Námskeið í Gísla sögu og forníslensku

Námskeið í Gísla sögu og forníslensku haldið á Ísafirði dagana 18. ágúst - 24. ágúst 2013.

 

Frekari upplýsingar eru á ensku.



 

Námskeiðslýsing
 

Námskeiðið er ítarleg en hröð kynning á tungumáli Eddukvæðanna og Íslendingasagnanna sem og á norrænum miðaldabókmenntum. Námskeiðinu er ætlað að mæta kröfum nema í norrænum málum og/eða forníslensku sem og annarra sem vilja sameina tungumálanám og lestur fornsagna.

 

Í tungumálanáminu verður aðaláherslan lögð á sögu og uppbyggingu íslenskunnar að fornu. Í fyrstu vikunni verður lögð nokkur áhersla á nútímaíslensku þ.a. þátttakendurnir öðlist betri skilning á íslenskunni sem töluð er í dag, bæði hvað varðar hljóðfræði og málfræði sem og framburð í nútímaíslensku.

 

Meðfram tungumálanáminu munu þátttakendur lesa Gísla sögu. Gísla saga verður þó ekki bara lesin til textarannsókna og skilnings heldur munu þátttakendur fá að kynnast sögusviði sögunnar með vettvangsferðum í Haukadal og Geirþjófsfjörð. Þátttakendurnir munu auk þess fá góða tilfinningu fyrir lífinu á tímum Gísla sögu, s.s. vopnum, húsbúnaði o.fl.

 

Kennslan fer fram í Háskólasetri Vestfjarða. Nemendur ljúka samtals 76 fjölbreyttum kennslustundum, bæði í hefðbundnum kennslustofum, á áhugaverðum fyrirlestrum og í spennandi dagsferðum. Meðal annars verður farið í ferð á söguslóðir Gísla sögu þar sem boðið verður upp á einleik Elfars Loga Hannessonar úr Gísla sögu og Dr. William Short mun kynna vopnabúnað á tímum Íslendingasagnanna og margt fleira.

Námskeiðið er bæði kennt á ensku og þýsku. 

 

Afþreyingardagskrá
 

Á Ísafirði eru í boði margskonar afþreying, s.s. skipulagðar ferðir af ýmsu tagi. Þessar ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldinu.

Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug, golfvöllur og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika. Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku tungumáli sem og samfélagi.

Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og borgara og býður nemendur hjartanlega velkomna.


Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband, islenska@uwestfjords.is.

Our community

"Iceland is a place where the four elements seem to be engaged in a constant battle for dominance over the lives of its inhabitants. This provides an exciting, if sometimes demanding, backdrop to the CMM programme. It's hard to imagine an environment better suited to preparing students for the challenges of a career in natural resource management."

Alan Deverell, Great Britain, CMM student 2009-2010

Announcements

Annual General Meeting
It is during the month of May that the Annual General Meeting takes place at the University Centre Westfjords. The AGM this year falls on 17th of May, and discussion points include......
More
Vefumsjón