Menu

University centre

Log in

Webmail

Upplýsingar á íslensku

Framhaldsnámskeið í íslensku haldið á Ísafirði dagana 5. – 16.  ágúst 2013.

 

Frekari upplýsingar eru á ensku.



 

Námskeiðslýsing

 

Framhaldsnámskeiðs í íslensku þar sem menningu landsins er fléttað inn í tungumálanámið. Námið er ætlað erlendum stúdentum og borgurum sem áhuga hafa á að bæta við sig kunnáttu í íslensku.  Nemendur ljúka samtals 37 fjölbreyttum og áhugaverðum kennslustundum.

 

Grundvallaratriði íslenskunnar verða kennd í gegnum fyrirlestra og æfingar. Lestrar- og skriftarkunnátta á stigi B1-B2 verður kennd í gegnum hópavinnu og lausnarleitarnám, til dæmis með því að bera kennsl á lykilorð og orðflokka, svo nemendur geti áttað sig á umfjöllunarefni texta. Nemendur taka þátt í samtalsæfingum í gegnum tungumálaleiki og lausnarleitarnám við raunverulegar aðstæður. Framburðaræfingar verða fjölbreytilegar og óvenjulegar. 

 

Nemendur sjá tvær íslenskar kvikmyndir sem kennari fylgir úr hlaði með stuttu inngangserindi.  Myndirnar verða á íslensku en með enskum texta. Að sýningu lokinni gefst nemendum kostur á að ræða myndina við kennarann.

 

Afþreyingardagskrá

 

Þótt tungumála- og menningarnámið sé í aðalhlutverki verður einnig í boði fjölbreytt afþreyingardagskrá.

 

Á Ísafirði eru í boði margskonar afþreying, s.s. skipulagðaar ferðir af ýmsu tagi.  Þessar ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldinu.

 

Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug, golfvöllur og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika.  Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku samfélagi.

 

Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og borgara og býður nemendur hjartanlega velkomna.

 

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband,

islenska@uwestfjords.is.

Our community

"I received an excellent and diverse education at the CMM program. I was stimulated by a diverse faculty and lived in a most exceptional town. The job that I landed at the Marine Research Institute is a direct result of the education I received in the CMM program."
Jacob Kasper, USA, CMM student 2008-2009

Announcements

Annual General Meeting
It is during the month of May that the Annual General Meeting takes place at the University Centre Westfjords. The AGM this year falls on 17th of May, and discussion points include......
More
Vefumsjón