Menu

University centre

Log in

Webmail

Sumarháskóli í íslensku fyrir erlenda stúdenta

Námskeið í íslensku haldið á Núpi dagana 05.08.2013-23.08.2013.

Frekari upplýsingar eru á ensku.



Námskeiðslýsing

Íslenskunámskeið þar sem menningu landsins er fléttað inn í tungumálanámið. Námið er sérstaklega ætlað nemendum sem hyggjast dvelja við nám á Íslandi í eina eða tvær annir. Námskeiðið hjálpar nemendum að aðlagast daglegu lífi í landinu og auðveldar þeim þátttöku í námi sínu.

Nemendur ljúka samtals 96 fjölbreyttum og áhugaverðum kennslustundum, bæði í hefðbundnum kennslustofum og í spennandi dagsferðum um nágrenni Núps og Ísafjarðar.

Grundvallaratriði í málfræði og orðaforða verða kennd í gegnum fyrirlestra og æfingar. Lestrar- og skriftarkunnátta á stigi A1-A2-B1 verður kennd í gegnum hópavinnu og lausnarleitarnám, til dæmis með því að bera kennsl á lykilorð og orðflokka, svo nemendur geti áttað sig á umfjöllunarefni texta. Nemendur taka þátt í samtalsæfingum í gegnum tungumálaleiki og lausnarleitarnám við raunverulegar aðstæður. Framburðaræfingar verða fjölbreytilegar og óvenjulegar.  Ferð verður farin á söguslóðir Gísla sögu þar sem meðal annars veður boðið upp á einleik Elfars Loga Hannessonar upp úr Gísla sögu.


Vikulega sjá nemendur íslenska kvikmynd sem kennarinn fylgir úr hlaði með stuttu inngangserindi á einfaldri íslensku þar sem lykilorðaforði er kynntur. Myndirnar verða á íslensku en með enskum texta. Að sýningu lokinni gefst nemendum kostur á að ræða myndina við kennarann.

Afþreyingardagskrá

Þótt tungumála- og menningarnámið sé í aðalhlutverki verður einnig í boði fjölbreytt afþreyingardagskrá.

Á Núpi má gera sér margt til skemmtunar, þar má t.d. klífa fjallið Óþola eða fara í gönguferðir á Skaga eða Ingjaldssands auk margs annars.  Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug, golfvöllur og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika.  Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku samfélagi.

Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og býður nemendur hjartanlega velkomna.

Our community

"I came to Ísafjörður to improve my Icelandic and I‘m very happy I did that. The Icelandic course has been fantastic! I learnt a lot and on top of that, Ísafjörður is a great little town with beautiful nature."

Nadine Weber, Germany, 3-Weeks Course in Icelandic and Culture 2010

Announcements

Annual General Meeting
It is during the month of May that the Annual General Meeting takes place at the University Centre Westfjords. The AGM this year falls on 17th of May, and discussion points include......
More
Vefumsjón