Vísindavefurinn
Aðstoð óskast!
Hefur þú áhuga á vísindum? Finnst þér gaman að kynna þér ný málefni? Vilt þú fræða aðra um það sem þér finnst skemmtilegt? Vísindavefurinn óskar eftir aðstoðarfólki!
Vísindavefur Háskóla Íslands (http://www.visindavefur.hi.is) er vefur fyrir almenning þar sem hægt er að leita svara við spurningum um allt milli himins og jarðar. Þar er nú þegar að finna rúmlega 7000 svör eftir ótal marga sérfræðinga á hinum ýmsu fræðasviðum.
Vísindavefurinn hefur notið mikilla vinsælda, sérstaklega hjá börnum og unglingum. Vegna gríðarlegs spurningaflóðs höfum við því miður ekki undan við að svara öllum þeim spurningum sem berast. Okkur finnst þess vegna kjörið að bjóða ungu fólki að taka þátt í uppbyggingu Vísindavefsins með því að spreyta sig á að svara spurningum sem borist hafa frá lesendum.
Þeir sem vilja leggja okkur lið fá að velja spurningar sem þeim finnst áhugaverðar og skemmtilegar og skrifa svör við þeim í samvinnu við ritstjórn. Til dæmis: Af hverju eru göt í osti? Hvað búa margir í Marokkó? Hver var Mídas konungur? Hvað éta hýenur? Hvað er Plútó stór? Hvað er fosfór?
Svörin verða birt á Vísindavefnum innan sérstaks flokks sem kallast Unga fólkið svarar.
- Kennari: Dagný Sveinbjörnsdóttir, starfsmaður Vísindavefs Háskóla Íslands