Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Lögfræði

Fyrri hluti námskeiðsins er ætlaður til kynningar á því hvað er lögfræði og hvernig fagið nýtist fólki við leik og starf. Skoðað verður á hvaða grunni lögfræðin byggir, þ.e. réttarheimildirnar, hvaða áhrif hún hefur á þróun menningar og þjóðlífs og hvaða skorður hún getur sett fólki við t.a.m. ráðstöfun eigin réttinda.

Síðari hluti námskeiðsins verður kynning á útlendingarétti, þ.e. hvaða réttindi og skyldur útlendingar hafa og bera á Íslandi og tekin nokkur raunhæf dæmi um höfnun réttinda og veitingu réttinda.

- Kennari: Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði

Meira úr "Námskeiðslýsingar HUF"

Háskólasamfélagið

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón