Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Háskóli unga fólksins 2008

Dagana 9.-13. júní 2008 býður Háskólasetur Vestfjarða háskólanám fyrir ungt fólk. Unglingum fæddum 1992-96 býðst þá að sækja fjölda stuttra námskeiða þar sem kennarar á háskólastigi fjalla um heima og geima.

Hver nemandi getur tekið allt að sex námskeið, svo að eitthvað nýtt og skemmtilegt er á stundatöflunni á hverjum degi. Í lok síðasta skóladagsins, föstudagsins 13. júní, verður haldin brautskráningarhátíð þar sem afrakstur skólastarfsins verður kynntur og brautskráningarskjal afhent.

Verð: kr. 12000 fyrir sex námskeið. Einnig er hægt að taka stök námskeið og er þá kostnaðurinn kr. 2500 fyrir hvert námskeið.
Boðið er upp á 30% systkinaafslátt.  Umsóknareyðublöð má finna í valmyndinni hér á vinstri hlið eða með því að smella hér.

Athugið að starfsmenn Háskólaseturs geta aðstoðað við að finna gistingu fyrir nemendur utan norðanverðra Vestfjarða.

Í boði er gisting í húsi miðsvæðis á Ísafirði, Túngötu 5.  Um er að ræða 5 herbergja hús þar sem unglingarnir geta verið 1 eða 2 í herbergi.  Innifalið er heimilismorgunverður og mun húseigandi og starfsmenn Háskólaseturs hafa umsjón og eftirlit með nemendum á meðan á námskeiðunum stendur.  Verðið fyrir 4 nætur er kr. 5000.

Einnig geta starfsmenn Háskólaseturs aðstoðað með að finna gistingu fyrir nemendur í heimahúsi ef óskað er eftir því.

Nánari upplýsingar í síma 450 3041 eða í tölvupósti marthalilja@hsvest.is.

Með því að smella á námskeiðsheitin hér fyrir neðan má nálgast námskeiðslýsingar - vinsamlegast athugið að skoða stundaskránna vel áður en námskeið eru valin til að minnka líkur á árekstrum, en sumir áfangar eru kenndir á sama tíma og aðrir.
- Stundaskrá

Háskólasamfélagiđ

„Auk samnemenda minna í CMM meistaranáminu mun ég sakna andrúmsloftsins í Háskólasetrinu. Stundir sem heilluðu tengjast oftast vettvangsferðum, t.d. að læra hvernig fiskeldi virkar í raun og veru með því að hoppa milli kvíanna og hjálpa til við að færa fiskinn á milli þeirra."

Astrid Dispert, Ţýskalandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón