Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Ađstađa

Í Háskólasetri Vestfjarða er boðið upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir háskólanema sem stunda fjarnám við háskóla landsins. Þrjár kennslustofur eru í setrinu, tvær þeirra með fjarfundabúnaði. Stofurnar eru ætlaðar fyrir kennslu en eru einnig nýttar sem lestrar- og vinnuaðstaða fyrir nemendur þegar ekki er í gangi kennsla. Á gangi setursins er lestrar- og hópvinnuaðstaða og er þar einnig að finna geymsluskápa til afnota fyrir nemendur. Einnig er til staðar lestrarherbergi þar sem gert er ráð fyrir að nemendur geti gengið að sem vísu að sé alltaf næði.

Tenging við þráðlaust net og fastanetstengla Hsvest
Háskólasetur Vestfjarða býður nemendum sínum aðgang að þráðlausu neti. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi yfir að ráða fartölvu sem hafi þráðlaust netkort. Þó er hægt að tengja fastatengla fyrir nemendur í undantekningartilfellum.
Til að fá tölvu tengda við þráðlaust net Háskólaseturs þarf að afhenda vefstjóra vélina til skráningar. Vefstjóri skráir mac adress fyrir hverja tölvu. Þetta er gert til þess að halda utan um netnotkun og prentnotkun þeirra sem netið nota. Vélar fá einungis skráningu séu þær öruggar hvað varðar vírusa og öryggisuppfærslur.

 

Vírusar og öryggisuppfærslur
Nauðsynlegt er að hafa tölvur uppfærðar hvort sem um er að ræða uppfærslur vírusvarna eða öryggisuppfærslur stýrikerfis. Ef þú uppfærir ekki tölvuna þína þá getur þú átt von á því að lokað verði fyrir allt netsamband til vélarinnar ef þú vírussmitast. Uppfærið tölvuna í gegnum heimasíðu Microsoft. ATH! Ekki er sjálfgefið að glænýjar vélar séu uppfærðar fram að deginum sem þær eru keyptar.

 

Prentun
Nemendum er gert kleift að prenta út á prenturum háskólaseturs. Hægt verður að fylgjast með prentnotkun nemenda og háskólasetrið áskilur sér rétt til að rukka nemendur um aukagjald fyrir prentun verði notkun fram úr hófi. Til þess að nota sér prentara Háskólaseturs þarf aðgang að þráðlausa netinu. Vefstjóri sér um að setja tölvurnar upp fyrir prentun um leið og tengin við net er skráð.
Ekki er gert ráð fyrir að nemendur noti prentara Háskólasetursins í mótttökunni fyrir langar ritgerðir eða skýrslur í mörgum eintökum. Í afgreiðslu Þróunarsetursins, hjá Grétu, er mjög öflugur litaprentari og þar er einnig aðstaða til að binda ritgerðir og skýrslur inn í gorma og geta nemendur nýtt sér aðstoð Grétu til þess. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þennan möguleika fyrir lengri verkefni og ritgerðir. Þessi möguleiki er sérstaklega hugsaður fyrir lokaverkefni nemenda og önnur stærri verkefni. Kostnaðarverð verður tekið fyrir þessa þjónustu. Gréta er við á daginn frá kl. 8:00-15:30 og er ekki hægt að prenta út hjá henni nema að hún sé við.

 

Fjarfundarbúnaður
Fjarnemar sem þurfa að sækja tíma í gegnum fjarfundabúnað sækja tíma sína í Háskólasetrinu. Þetta er kjarninn í þjónustu setursins við fjarnema í háskólanámi. Setrið hefur yfir að ráða nýjum, öflugum fjarfundabúnaði frá Polycom í öllum stofum. Um daglegan rekstur búnaðar sjá starfsmenn Háskólasetursins og vef- og tæknistjóri hefur yfirumsjón með honum líkt og öðrum tækjum Háskólaseturs. Mikilvægt er að hafa samband við starfsfólk setursins ef eitthvað kemur upp á varðandi fjarfundi eða fjarfundabúnað. Nemendum er ekki heimilt að framkvæma aðgerðir á fjarfundabúnaði án samráðs við ofangreinda aðila. Heimilt er þó að slökkva og kveikja á skjávörpum og er mælst til þess að nemendur slökkvi eftir kennslustundir. Gert er ráð fyrir að nemendur kunni sjálfir að kveikja á fjarfundabúnaðnum og skjávarpanum ef ekki er kveikt þegar nemendur mæta í tíma. Ef nemendur hafa einhverjar spurningar varðandi búnaðinn í stofunum eða einhver vandamál koma upp er þeim beint til starfsmanna. Gert er ráð fyrir að alltaf sé hægt að ná í einhvern starfsmann í síma á þeim tímum sem þeir eru ekki í húsinu.

 

Ljósritun
Ljósritunarvél er staðsett í móttöku og geta nemendur keypt ljósritunarkort í móttöku.

 

Lyklar
Eftir klukkan 17 á daginn er húsinu læst. Nemendur geta fengið lykil af húsinu, en lykillinn er í formi svokallaðs lyklakorts með segulrönd. Til að fá lykilinn þurfa nemendur að leggja fram tryggingu að upphæð kr. 1.500 sem þeir fá svo endurgreitt þegar kortinu er skilað í lok skólaársins.

 

Önnur aðstaða
Nemendur hafa aðgang að kaffisal Háskólasetursins og geta geymt mat í skápum og í ísskáp. Munið að merkja allt sem ykkur tilheyrir. Háskólasetrið á kaffivél en nemendur þurfa að greiða fyrir kaffið. Hver kaffibolli kostar kr. 50, hægt verður að kaupa mánaðarkort í móttöku fyrir kr. 500.

 

Umgengni
Þar sem nemendum er veittur ótakmarkaður aðgangur að Háskólasetrinu er gert ráð fyrir að þeir virði almennar umgengnisreglur og sjái um að skilja við eins og komið var að. Nemendur skulu þrífa eftir sig í eldhúsinu og ganga frá lesborðum þannig að næsti nemandi komi að hreinu borði. Ekki er heimilt að skilja eftir bækur og gögn á borðunum þegar nemendur eru þar ekki sjálfir þar sem Háskólasetrið tekur ekki ábyrgð á bókum og öðrum gögnum ef þau týnast eða komast í rangar hendur. Nemendur geta fengið úthlutuðum geymsluskáp, það eina sem nemendur þurfa að gera er að koma með eigin hengilás á skápinn.

 

Nemendur og aðstaðan
Þó svo að þjónusta setursins snúist að miklu leyti í kringum þá nemendur sem sækja tíma í gegnum fjarfundabúnað vill Háskólasetrið leggja áherslu á að setrið er ætlað öllum sem stunda fjarnám á háskólastigi. Þeir nemendur sem geta stundað nám sitt á netinu í gegnum tölvu eru að sjálfsögðu velkomnir í Háskólasetrið til að stunda sitt nám og lesa og nýta alla þá aðstöðu og þjónustu sem boðið er uppá. Reyndar viljum við sérstaklega hvetja þá nemendur til að kynna sér þá aðstöðu sem hér er í boði og hvetja þá til að nýta sér hana til hins ýtrasta eins og þeim hentar. Allir nemendur sem stunda nám á háskólastigi á svæðinu geta fengið lykilkort og haft aðgang að húsinu hvenær sem er sólarhrings, fengið aðgang að þráðlausu neti og prentara, ljósritun og allri annarri þjónustu sem í boði eru fyrir nemendur. Þjónustu- og kennslustjóri heldur utan um lista yfir nemendur á svæðinu sem stunda fjarnám á háskólastigi. Listinn er unninn út frá upplýsingum frá háskólunum og er ekki í öllum tilfellum víst að um tæmandi lista sé að ræða og einnig vantar oft upplýsingar um netföng eða símanúmer nemenda. Nemendur eru hvattir til að koma þessum upplýsingum á framfæri við þjónustu- og kennslustjóra, þ.e. hvaða nám þeir stunda svo og upplýsingar um netfang sem nemandi vill fá upplýsingar frá Háskólasetrinu í og símanúmer. Netfang þjónustu- og kennslustjóra er marthalilja hjá hsvest.is. Vakin er athygli á því að ef nemandi hefur ekki áhuga á að fá upplýsingar um viðburði í Háskólasetrinu í tölvupósti getur hann óskað eftir því að netfang hans verði afskráð af póstlistanum.

Háskólasamfélagiđ

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón