Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

miðvikudagurinn 19. október 2011

Yfirstandandi námskeið: Vistfræði hafs og stranda

Nú stendur yfir námskeiðið Vistfræði hafs og stranda (Coastal and Marine Ecology) í haf- og strandsvæðstjórnun. Aðalkennarar námskeiðsins eru tveir, Guðmundur Ingi og Hrönn:

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Guðmundur Ingi Guðbrandsson er með BS í líffræði frá Háskóli Íslands (2002) og MEM gráðu í umhverfisfræði frá Yale University (2006). Á árunum 2006 til 2008 lagði hann stund á rannsóknir og verkefnisstjórn alþjóðamála hjá Landgræðslu ríkisins. Eftir það hóf hann störf hjá Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við HÍ. Vorið 2010 var hann staðgengill umsjónarmanns námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ. Haustið 2011 tók hann síðan við sem framkvæmdastjóri Landverndar.

Guðmundur Ingi hefur m.a. kennt eftirfarandi námskeið, í heild eða að hluta til, við Háskóla Íslands: Loftslagsbreytingar í fortíð, nútíð og framtíð; Vistfræði B; Umhverfisfræði (í líffræði); Þættir í umhverfis- og auðlindafræði II; og Stjórnun friðlýstra svæða - vettfangsferð á Suðausturlandi. 

Þetta er í annað sinn sem Guðmundur Ingi kennir námskeiðið við Háskólasetur Vestfjarða.

--

Hrönn Egilsdóttir
Hrönn Egilsdóttir
Hrönn Egilsdóttir hóf doktorsnám við Háskóla Íslands og Hafrannsóknarstofnun árið 2009. Í doktorsverkefni sínu skoðar hún súrnun sjávar við Ísland og áhrif á vissar tegundis lífríkis. Aðalleiðbeinandi hennar er prófessor Jón Ólafsson.

Hrönn lauk MRes gráðu í sjávarlíffræði (2008) frá Háskólanum í Plymouth í England og B.Sc. gráðu í sjávarlíffræði og tengdum greinum (2007) frá Háskóla Íslands.

Hrönn hefur starfað fyrir Marine Biological Association á Bretlandseyjum

Hrönn starfaði einnig fyrir Háskóla Plymouth sem aðstoðarmaður og skipuleggjandi á ráðstefnu um lífeðlisfræði sem haldinn var í maí 2008 í Englandi og sem rannsóknamaður í fiskeldi og fiskalíffræði við Háskólann á Hólum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Hrönn kennir við Háskólasetur Vestfjarða. 

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón