þriðjudagurinn 29. júní 2010
World Light - World Song, vel heppnuð þriggja daga dagskrá
Í síðustu viku stóð íslenskudeild Manitóbaháskóla í Kanada með dr. Birnu Bjarnadóttur forstöðumann sinn í fararbroddi fyrir þriggja daga menningardagskrá hér á Ísafirði, í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Þessi dagskrá var helguð náttúrunni, skáldskap og tónlist og voru Heimsljós Halldórs Laxness, skáldskapur Höllu Eyjólfsdóttur skáldkonu (Höllu á Laugabóli) ásamt tónlist Sigvalda Kaldalóns í brennidepli. Dagskráin var haldin í tengslum við komu Birnu með hóp vettvangsskólanema frá íslenskudeildinni, en þetta er fjórða árið í röð sem hún sækir Háskólasetrið heim ásamt nemum.
Dagskráin hófst sunnudaginn 20. júní með gönguferð og var leiðsögumaður Barði Ingibjartsson. Gengið var frá Seljalandi í Álftafirði að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði um Álftafjarðarheiði, sem liggur hæst í 725 m.y.s. Þræddar voru fornar reiðgötur sem víða eru vel sýnilegar á þessari skemmtilegu gönguleið.
Morguninn eftir hófst metnaðarfullt bókmenntaþing í Hömrum, sal Tónlistarfélags Ísafjarðar, þar sem skáld, rithöfundar, tónlistarmenn og fræðimenn komu saman og fjölluðu um sambandið milli náttúru, samfélags og skáldskapar.
Fyrirlesarar voru dr. Gauti Kristmannsson dósent við Háskóla Íslands, Ingi Björn Guðnason bókmenntafræðingur, Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur, og kanadíska tónskáldið Matthew Patton. Einnig fóru með erindi Chris Crocker, Andrew McGillivray, Becky Forsythe og Elin Thordarson en þau er öll framhaldsnemar við íslenskudeild Manitóbaháskóla.
Að loknu málþingi hélt hópurinn í Tjöruhúsið þar sem borið var fram glæsilegt fiskiréttahlaðborð. Í Tjöruhúsinu var boðið upp á fallegan söng ungra ísfirskra stúlkna og kvenna undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur kórstjóra og söngkennara.
Um kvöldið fóru svo fram glæsilegir tónleikar í Hömrum með þeim Eyjólfi Eyjólfssyni tenór og Ingunni Sturludóttur mezzosópran við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur. Sungin voru lög við ljóð Nóbelskáldsins og Höllu Eyjólfsdóttur við lög Sigvalda Kaldalóns auk þess sem lesið var upp úr verkum þessara skálda.
Síðasti dagskrárliður þessarar þriggja daga viðburðar var sigling í Vigur og um Inn-Djúpið. Í Vigur var gengið undir leiðsögn Björns Baldurssonar (Bödda) sem fræddi hópinn um lífið í eyjunni í gegnum aldirnar, fuglalífið og fleira áhugavert. Að göngu lokinni gæddi hópurinn sér á dýrindis súpu í hinu svokallaða Viktoríuhúsi. Margir notuðu tækifærið og sendu póstkort úr þessu minnsta pósthúsi landsins. Eftir góða dvöl í veðurblíðunni í þessari fallegu eyju var haldið í stutta siglingu um Inn-Djúpið.
Óhætt er að segja að þessi dagskrá hafi öll heppnast vel og eru hugmyndir uppi um að endurtaka leikinn á næsta ári, en þá er von á Birnu og nýjum vettvangsskólahópi á vegum íslenskududeildar Manitóbaháskóla.