Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

miðvikudagurinn 22. september 2010

Vettvangsferð um sunnanverða Vestfirði

Hópnum bauðst meðal annars að fara í þriggja tíma siglingu út í fiskeldiskvíar og fylgjast með fóðrun eldisfisksins.
Hópnum bauðst meðal annars að fara í þriggja tíma siglingu út í fiskeldiskvíar og fylgjast með fóðrun eldisfisksins.
Í síðustu viku fóru meistaranemar í haf- og strandsvæðastjórnun í spennandi tveggja daga ferð um sunnanverða Vestfirði. Hópurinn lagði af stað frá Ísafirði með rútu mánudaginn 13. september og ók áleiðis að Dynjanda í Arnarfirði þar sem stutt stopp var gert. Á leiðinni til Patreksfjarðar fékk hópurinn stutta kynningu á Gíslasögu og þeim atburðum sögunnar sem tengjast Arnarfirði.

Að loknum hádegisverði á Patreksfirði og göngu um bæinn tók Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar á móti hópnum og ræddi við nemendur um ýmsar áskoranir sem smábæir við sjávarsíðuna þurfa að takast á við. Síðdegis var síðan haldið til Tálknafjarðar þar sem Jón Örn Pálsson tók á móti hópnum og fræddi hann um rannsóknir og þróun í fiskeldi. Meðal annars var farið á bát út í fiskeldiskvíarnar þar sem hópnum gafst færi á að fylgjast með fóðrun eldisfisksins. Að lokinni þriggja tíma bátsferð var kærkomið að slaka á og ná yl í kroppinn í heitum pottum á Tálknafirði. Dagurinn endaði svo á heimsókn í Skrímslasetrið á Bíldudal þar sem hópurinn fékk dýrindis súpu og las sér til um sæskrímsli á sunnanverðum Vestfjörðum. Eftir þennan langa en vel heppnaða dag voru allir fengir að leggjast til hvílu á huggulegu gistiheimili á Bíldudal.

Náttúrufegurð Rauðasands er óviðjafnanleg.
Náttúrufegurð Rauðasands er óviðjafnanleg.
Þar sem veðurútlitið var ekki sérlega gott annan daginn var ákveðið að fresta fyrirhugaðri ferð í Selárdal og fara þess í stað á Rauðasand og skoða strandlengjuna þar. Áður en haldið var á Rauðasand kom hópurinn við í Hvestu í Arnarfirði þar sem aðstæður skoðaðar á þeim slóðum sem lagt hefur verið til að olíuhreinsunarstöð rísi. Í kjölfarið hélt hópurinn svo á Rauðasand útbúinn nesti og regnfatnaði. Á Rauðasandi var nokkuð hvasst en að öðru leyti þokkalegt veður og töldu sumir nemendurnir það ekki eftir sér að kanna strandlengjuna með því að vaða fjöruborðið. Að lokinni tveggja tíma göngu var áð og hádegisverður snæddur. Dagurinn endaði svo með heimsókn í safnið að Hnjóti í Örlygshöfn þar sem nemendur fengu innsýn í magnaðar skipbrotssögur af svæðinu. Eftir langa en vel heppnaða ferð notuðu margir tækifærið á leiðinni heim á Ísafjörð til að dotta á meðan rútan þræddi hina misgóðu vegi sunnanverðra Vestfjarða.

Jón Örn Pálsson tók höfðinglega á móti hópnum og fræddi hann um rannsóknir og þróun í fiskeldi.
Jón Örn Pálsson tók höfðinglega á móti hópnum og fræddi hann um rannsóknir og þróun í fiskeldi.
Allt í allt var ferðin mjög vel heppnuð og voru nemendurnir hæstánægðir. Sérstakar þakkir eru færðar til Ásthildar Sturludóttur bæjarstjóra fyrir að taka sér tíma til að ræða við nemendur. Hið sama gildir um Jón Örn Pálsson sem tók höfðinglega á móti hópnum og veitti nemendunum ómetanlega innsýn í fiskeldi. Einnig fá staðarhaldarar og leiðsögumenn Skrímslasetursins á Bíldudal þakkir fyrir að leiða nemendur inn í heim íslenskra sæskrímsla og að lokum Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, safnstjóri að Hnjóti fyrir magnaðar frásagnir af skipbrotum.

Háskólasamfélagið

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón