Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

miđvikudagurinn 14. september 2011

Vettvangsferđ og ný kennslulota

Nemendur heimsóttu Ósvör.
Nemendur heimsóttu Ósvör.
Ný kennslulota er hafin í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun með námskeiðinu „Understanding the Coast and the Ocean." Kennari námskeiðsins er Sigríður Ólafsdóttir umhverfisfræðingur og stundakennari við HÍ. Sigríður er langt í frá ókunnug meistaranáminu því hún gegndi starfi fagstjóra meistaranámsins þegar það var að komast á legg. Námskeiðið um skilning á hafi og strönd er fyrsta skyldunámskeið annarinnar og stendur yfir í tvær vikur. Í vikunni á undan fór fram viku langt valnámskeið um Ísland, umhverfi þess og náttúruauðlindir.


Sigríđur Ólafsdóttir.
Sigríđur Ólafsdóttir.
Nemendur höfðu í nógu að snúast þessa fyrstu viku því auk valnámskeiðsins var vikan nýtt sem nokkurskonar nýnemavika þar sem nemendum voru boðnir velkomnir og þeim kynnt ýmislegt í næruhverfinu. Nýnemavikunni lauk á föstudaginn var, með vettvangsferð í Bolungarvík og Skálavík. Meðal annars skoðuðu nemendur sjóminjasafnið í Ósvör, heimsóttu Náttúrustofu Vestfjarða, Náttúrugripasafnið og að lokum var farið yfir í Skálavík þar sem pönnukökur og kakó biðu nemenda.



Skálavík skartađi sínu fegursta.
Skálavík skartađi sínu fegursta.
Nokkrar breytingar hafa orðið á skipulagi námsleiðarinnar frá síðustu árum og taka þær gildi nú í haust. Breytingarnar felast einkum í því að einingafjöldi og kennslulotur námskeiða verða breytilegar, eins og sjá má á þeim tveimur námskeiðum sem hér hafa verið nefnd. Í stað þess að öll námskeið séu þriggja vikna löng og sex einingar að vægi, geta þau nú verið allt frá einni og upp í átta einingar og þar af leiðandi einnig mis löng hvað kennslutíma varðar. Inntak námsins breytist ekki en með þessari nýju umgjörð námsskeiða næst fram hnitmiðaðri blanda af þeim viðfangsefnum umhverfis- og auðlindastjórnunar sem nemendum er ætlað að kunna skil á að loknu námi.

Háskólasamfélagiđ

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón