Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

mánudagurinn 22. nóvember 2010

Vettvangsferð meistaranema til Súðavíkur

Carrie Drake, nemi í CMM, skoðar aðstöðu refaskyttu sem er til sýnis í Melrakkasetrinu.
Carrie Drake, nemi í CMM, skoðar aðstöðu refaskyttu sem er til sýnis í Melrakkasetrinu.
Fimmtudaginn 11. nóvember síðastliðinn fóru nemendurnir í haf- og strandsvæðastjórnun í vettvangsferð til Súðavíkur, þar sem Melrakkasetrið og tvö fyrirtæki voru heimsótt. Fyrst var haldið í Melrakkasetrið þar sem Ester Rut Unnsteinsdóttir, forstöðumaður tók á móti hópnum. Hún kynnti fyrir nemendum starfsemi setursins og sýninguna sem þar er að finna. Melrakkasetrið var stofnað árið 2007 en var formlega opnað er setrið flutti í nýuppgert húsnæði, Eyrardalsbæinn, fyrr á þessu ári. Í Melrakkasetrinu hitti hópurinn einnig sveitarstjórann, Ómar Má Jónsson, og kynnti hann sveitarfélagið og svaraði spurningum nemenda.

Nemendur fylgjast með framleiðsluferli pokabeitunnar sem Bernskan ehf framleiðir.
Nemendur fylgjast með framleiðsluferli pokabeitunnar sem Bernskan ehf framleiðir.
Næst var Bernskan ehf sótt heim. Bernskan er fyrirtæki sem framleiðir beitu, aðallega úr makríl, fyrir línubáta og er um að ræða svokallaða pokabeitu. Bernskan er eina fyrirtækið í heiminum sem framleiðir pokabeitu. Sveinbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Bernskunnar, sýndi hópnum vinnsluna og útskýrði vinnsluferlið. Óhætt er að segja að nemendunum hafi þótt þetta nokkuð merkilegt.

Loks heimsótti hópurinn Murr ehf sem framleiðir gæludýrafóður úr íslensku hráefni. Tók þar á móti hópnum Sigurdís Samúelsdóttir verkstjóri og útskýrði hina ýmsu þætti framleiðslunnar. Hópurinn fékk að sjá hráefni sem og tilbúnar afurðir og þótti þeim þessi heimsókn ekki síður áhugaverð.

Hjá Murr í Súðavík sem framleiðir gæludýrafóður. Frá vinstri: Vilma Kuuliala, Felix Enongene og Sarah Giltz.
Hjá Murr í Súðavík sem framleiðir gæludýrafóður. Frá vinstri: Vilma Kuuliala, Felix Enongene og Sarah Giltz.
Heimsóknirnar í framleiðslufyrirtækin tvö og Melrakkasetrið sýnir þá miklu breidd sem er í atvinnulífi Súðavíkur, sveitarfélagi þar sem um 200 manns búa, og höfðu nemarnir orð á því. Háskólasetur Vestfjarða vill þakka þeim aðilum sem að heimsókninni komu kærlega fyrir góðar móttökur.

Háskólasamfélagið

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón