Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

mánudagurinn 17. maí 2010

Vettvangsferð í Vigur með frönskum loftslagssérfræðingi

Kennslustund undir berum himni.
Kennslustund undir berum himni.
Föstudaginn 7. maí síðastliðinn heimsótti franskur sérfræðingur í loftslagsmálum, Dr. Daniel Martin, Háskólasetur Vestfjarða á vegum franska sendiráðsins á Íslandi. Dr. Martin er rannsóknarverkefnisstjóri hjá ráðuneyti í Frakklandi sem hefur með vistfræði, orku, sjálfbæra þróun og hafið að gera (MEEDDM).

Dr. Marin hélt erindi í málstofu í námskeiðinu Climate Changes and Policy, eða Loftslagsbreytingar og stefnumörkun, sem nú stendur yfir í meistaranáminu. Í erindinu sínu fjallaði hann einkum um mikilvægt hlutverk fjölmiðla þegar kemur að miðlun upplýsinga um loftslagsmál til almennings. Einnig ræddi hann um rannsóknir sem hann stýrir og tekur þátt í sem snúa að loftslagsbreytingum. Það er mikill fengur að því að fá gest á borð við Daniel Martin hingað vestur enda er hann í miðri hringiðu vísindaumræðunnar um loftslagsmál í heiminum.

Að fyrirlestrinum loknum héldu nemendur loftslagsnámskeiðsins í vettvangsferð í Vigur, ásamt Dr. Martin og nemendum námskeiðsins Chemistry and Contamination in the Coastal Zone, eða Efnafræði og mengun á strandsvæðum, og kennara þess Dr. Hrönn Jörundsdóttur.

Nemendur kynntust einnig dúntekju og dúnvinnslu í Vigur.
Nemendur kynntust einnig dúntekju og dúnvinnslu í Vigur.
Í Vigur skoðuðu nemendur loftslagsnámskeiðsins m.a. ummerki um nýlegan sinubruna og var sá viðburður tengdur við ýmislegt forvitnilegt sem fram hafði komið á námskeiðinu m.a. minnkandi ofankomu. Nemendur mengunarnámskeiðsins skoðuðu viðburðinn út frá öðru sjónarhorni, þ.e. með tilliti til þess hvort slíkir brunar í náttúrunni geti haft í för með sér umhverfismengun.

Jafnframt þessum námspælingum nutu nemendur og kennarar náttúrufegurðarinnar í Vigur og ekki síður gestrisni ábúenda sem kynntu t.d. æðardúntekju og vinnslu fyrir þeim. Ekki var síður ánægjulegt að njóta siglingarinnar með Sjóferðum á Ísafirði sem veittu framúrskarandi þjónustu og hugsuðu vel um hópinn.

Háskólasamfélagið

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón