þriðjudagurinn 13. október 2009
Vettvangsferð á Flateyri
Meistaranemar í haf- og strandsvæðastjórnun fóru á dögunum í stutta vettvangsferð á Flateyri. Ferðin var farin í tengslum við námskeiðið Society and Natural Resources, sem gæti kallast Samfélag og auðlindi á íslensku. Guðrún Pálsdóttir fiskverkandi og ferðaþjónustuaðili á Flateyri sá um að leiða hópinn um þorpið og segja frá sögu þess, þróun í atvinnumálum, uppbyggingu eftir snjóflóðið 1995 og ýmsu fleiru.
Farið var upp á snjóflóðavarnargarðinn og í framhaldinu komið við í gömlu bókabúðinni, Bræðurnir Eyjólfsson, sem nú er safn.
Þar tók Jóhanna Kristjánsdóttir á móti nemunum og fræddi þá um verslunina. Einnig var komið við á ýmsum stöðum sem tengjast sjávarútvegi. Þar á meðal í beitningarskúr og í fiskverkuninni EG, fyrirtæki Guðrúnar og eiginmanns hennar, þar sem hópnum var boðið upp á harðfisk. Ferðin endaði svo í frystihúsi Eyrarodda, þar sem Teitur Björn Einarsson, framkvæmdastjóri fræddi hópinn um fyrirtækið og vinnsluna. Þar gafst nemunum einnig tækifæri til að spyrja nánar út í rekstur slíkra fyrirtækja, sem þeir nýttu sér vel.
Ferðin veitti nemunum, sem flestir eru af erlendum uppruna, gott tækifæri til að öðlast innsýni í líf og lífsskilyrði fólks í litlu samfélagi við sjávarsíðuna sem á undanförnum árum hefur þurft að glíma við afleiðingar snjóflóðs og samdrátt á atvinnumarkaði.
Kunnum við öllum sem aðstoðuðu og tóku á móti nemunum bestu þakkir fyrir þeirra framlag.