ţriđjudagurinn 14. júlí 2009
Tvö valnámskeiđ hafin í meistaranáminu í haf- og strandsvćđastjórnun
Í gær hófust tvö ný valnámskeið í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun.
Annars vegar er um ræða námskeiðið Geographical information systems, og kennir það Tom Barry. Tom er með meistaragráðu í umhverfislandfræði frá Háskólanum í Cork, Írlandi. Hann er síðan nokkur ár tilbaka búséttur hér á landi og kennir við Háskólann á Akureyri, en vinnur einnig m.a. fyrir CAFF, Conservation of Arctic Flora and Fauna Working Group of the Arctic Council (www.caff.is).
Hins vegar er um að ræða námskeiðið Tourism policy and planning in coastal areas. Kennari þessa námskeiðs er Marc L. Miller, prófessor við Washington Háskóla í Seattle, BNA. Marc er með doktorspróf í menningarmannfræði og áhugasvið hans eru m.a. uppbygging ferðaþjónustu, stjórnun strandsvæða, uppbygging hafnarsvæða o.fl. Hann hefur í gegnum árin ritað fjölda greina og situr einnig í ritstjórnum nokkurra alþjóðlegra tímarita, t.a.m. Tourism in Marine Environments og Annals of Tourism Research.