Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

mánudagurinn 22. júní 2009

Tvö valnámskeiđ ađ hefjast

Í dag hefjast tvö ný námskeið í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða.

Einar Hreinsson
Einar Hreinsson
Annars vegar er um að ræða námskeiðið Introduction to marine technology sem Einar Hreinsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun á Ísafirði kennir. Einar hefur áður kennt svipuð námskeið við Háskólann á Akureyri og einnig við Sjávarútvegsskóla Sameinuðu Þjóðanna.

Emil Ólafsson
Emil Ólafsson
Hinsvegar er um að ræða námskeiðið Environmental impact assessment and sustainability management systems. Kennarar eru tveir, þeir Dr. Emil Ólafsson, sem hefur yfirumsjón með námskeiðinu, og Gunnar Páll Eydal. Emil er sjávarlíffræðingur og rekur ráðgjafafyrirtækið Menntun sem staðsett er á Spáni, og sérhæfir sig í umhverfisrannsóknum og -fræðslu. Hann kenndi hér nýlega annað námskeið, Evaluating variation in Population and Communities.

Gunnar Páll Eydal
Gunnar Páll Eydal
Gunnar Páll Eydal er með BSc í jarðfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í auðlinda -og umhverfisstjórnun frá Simon Fraser Háskóla í Kanada. Hann starfar síðan árið 2006 við Teiknistofuna Eik á Ísafirði.

Næstu tvö valnámskeið hefjast svo eftir tæpar þrjár vikur en það eru námskeiðin Tourism Policy and Planning in Coastal Areas og Geographical Information Systems.

 

Háskólasamfélagiđ

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón