Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

þriðjudagurinn 29. mars 2011

Tvö ný námskeið: Mengun og mat á umhverfisáhrifum

Helga Gunnlaugsdóttir.
Helga Gunnlaugsdóttir.
Í vikunni hófust tvö ný valnámskeið í haf- og strandsvæðastjórnunar meistaranáminu. Þetta eru síðustu námskeiðin fyrir páskafrí en að fríinu loknu taka við þrjár síðustu þriggja vikna kennsluloturnar. Í kjölfar þeirra snúa nemendur sér alfarið að vinnu við lokaritgerðir sínar.

Námskeiðin sem hófust í vikunni fjalla um mengun haf- og strandsvæða (Pollution in the Coastal and Marine Environment) og mat á umhverfisáhrifum (Environmental Assessment). Bæði námskeiðin hafa á að skipa nýjum kennurum, auk kennara sem áður hafa starfað við Háskólasetrið. Mengunarnámskeiðið kennir, líkt og á síðasta ári, Dr. Hrönn Jörundsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, en í ár kennir Dr. Helga Gunnlaugsdóttir, fagstjóri hjá Matís, einnig í námskeiðinu. Hitt námskeiðið, um mat á umhverfisáhrifum, er líkt og undanfarin ár kennt af Gunnari Páli Eydal, umhverfisfræðingi hjá Teiknistofunni Eik á Ísafirði, en samkennari hans í ár er
Ólafur Árnason.
Ólafur Árnason.
Ólafur Árnason sérfræðingur í mati á umhverfisáhrifum hjá EFLA verkfræðistofu.

Við bjóðum þau Helgu og Ólaf sérstaklega velkomin til starfa við Háskólasetur Vestfjarða.

Háskólasamfélagið

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón