Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

ţriđjudagurinn 18. ágúst 2009

Síđustu valnámskeiđin 2008-2009

Nú standa yfir tvö síðustu valnámskeiðin í meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórnun skólaárið 2008-2009. Þegar þeim lýkur munu nemendurnir sem eru að klára þetta fyrsta kennsluár námsleiðarinnar dreifa sér víða um heiminn til að vinna að lokaritgerðum sínum. Nemendurnir mun dvelja á Íslandi, Englandi, Kanada og Suður Afríku og fást við spennandi og fjölbreytt rannsóknarviðfangsefni.

Síðustu tvö námskeiðin eru Coastal and Marine Conservation og Energy and Materials Management. Hið fyrrnefnda er kennt af Brad Barr, gestakennara frá Massachusetts í Bandaríkjunum. Hann starfar sem ráðgjafi við stefnumótun hjá National Marine Sanctuary verkefninu í Bandaríkjunum auk þess að stunda doktorsnám við Háskólann í Alaska. Hann situr í stjórnum George Wright Society, Coastal Zone Canada Association, Sience and Management of Protected Areas Association auk þess að vera félagi í IUCN World Commission on Protected Areas. Í námskeiði Brad Barr fá nemendur innsýn í þær ólíku áskoranir sem blasa við þeim sem hafa umsjón með vernduðum hafsvæðum og hvernig brugðist er við þeim. Jafnframt munu nemendur kynnast þeim aðferðum sem umsjónarmenn slíkra svæða notast við auk þess að fá skilning á þeim vandamálum sem enn hafa ekki verið leyst.

Dr. John Nyboer kennir hitt valnámskeiðið, Energy and Materials Management. Dr. John Nyboer gegnir rannsóknarstöðu við Simon Fraser háskólann í Vancouver í Kanda og er forstöðumaður rannsóknarhópsins Energy and Materials Research Group (EMRG). Í námskeiðinu er leitast við að skoða á þverfaglegan hátt hvernig mannfólkið hefur áhrif á flæði orku og efna um Jörðina. Litið er til þeirra áskorana sem þetta flæði veldur og snúa að því að viðhalda getu Jarðarinnar til að standa undir lífi og félagslegum stöðugleika. Þá er fjallað um tæknilegar, varmafræðilegar, landfræðilegar og líffræðilegar lausnir til að breyta eðli þessa flæðis í átt að sjálfbærni. Einnig er fjallað um mögulegar afleiðingar þessara lausna út frá vistfræðilegum, efnahagslegum og félagslegum sjónarhóli . Auk þess sem litið til þeirra stofnana og stefnumótunar, allt frá nærsamfélaginu til hnattræns samhengis, sem geta skapað þessum lausnum farveg.

Háskólasamfélagiđ

„Ég hef gaman af að hitta fólk með ólíkan bakgrunn, skoðanir, drauma og óskir. Samnemendur mínir og kennarar , í CMM náminu, hafa hjálpað mér að opna hugann og hugsa eftir nýjum brautum."

Bjarni, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón