föstudagurinn 8. júlí 2011
Plast inntaka fýla við Ísland
Síðastliðna vorönn stunduðu sex skiptinemar nám í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Þrír frá háskólanum í Þrándheimi í Noregi og þrír frá Wageningen háskólanum í Leewarden, Hollandi. Einn nemendanna frá Hollandi, Susanne Knhn, hefur nýtt dvölina til að taka sýni úr fýlum til að kanna plastmagn í innyflum þeirra.
Susanne fræddi okkur um þetta verkefni og bakgrunn sinn þegar hún fékkst við krufningu síðustu sýnanna sem hún safnaði í maí. „Ég er að ljúka B.Sc. prófi í strandsvæðastjórnun í borginni Leewarden í Hollandi og kom hingað í Háskólasetrið sem skiptinemi í hálft ár til að víkka sjónarhorn mitt á haf- og strandsvæðastjórnun," segir Susanne. Hún naut aðstoðar samnemenda sinna við krufninguna og skráningu niðurstaðna. Náttúrustofa Vestfjarða og Hafrannsóknarstofnun veitt Susanne aðgang að rannsóknarstofu og blautrými til að vinna að verkefninu.
Gríðarlegt magn plastúrgangs flýtur um Norðurhaf og norðanvert Atlantshafið. Plastið brotnar mjög hægt niður og lendir í hafinu bæði á hafi úti og frá ströndunum. Þetta fljótandi plast safnast fyrir í innyflum fugla, t.a.m. finnst plastúrgangur í innyflum 97% fýlastofnsins á svæðinu*. Af þessum sökum er fýllinn notaður til að gefa mynd af plastmagni og hegðun plasts í hafinu sem liggur að Evrópu.
Rannsóknarverkefni Susanne er hluti af stóru Evrópsku verkefni: „Ég fékk tækifæri til að vinna fyrir samhæfingaraðila evrópsks verkefnis um áhrif plasts á fýla í Hollandi. Að hans ósk hef ég unnið að því að koma upp samböndum til að safna dauðum fýlum á Íslandi til rannsókna en sem stendur er engin þekking til staðar á stöðu plastinntöku fýla við strendur Íslands. Sjómaður sem gerir út línubát í Bolungarvík hefur aðstoðað mig í þessu skyni og safnað fýlum sem hafa fests í línunum." Fleiri nemendur við skóla Susanne nutu góðs af veru hennar á Íslandi því hún tók einnig að sér að safna fjaðrasýnum úr fuglunum sem munu nýtast doktorsnema sem stundar rannsóknir á magni þungmálma í ólíkum fýlastofnum.
OSPAR nefndin hefur sett fram vistfræðileg gæðamarkmið (Ecological quality objectives) til að minnka plast í Norðursjó og þar með í fýlum. Í tengslum við þessi markmið eru breytingar á plastmengun skoðaðar í mörgum löndum við Norðursjó, austanvert Atlandshaf og nú loks á á Íslandi í þessu sambandi.
Við óskum Susanne alls hins besta með rannsóknarverkefni sitt og vonumst til að sjá hana fyrr en seinna á Íslandi aftur.
http://www.ospar.org/
Nánari upplýsingar um rannsóknir á plast inntöku fugla
*Heimild