Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

ţriđjudagurinn 22. júní 2010

Opiđ helgarnámskeiđ í júní: Úrlausn ágreiningsmála

Kennari námskeiđsins Páll Ásgeir Davíđsson.
Kennari námskeiđsins Páll Ásgeir Davíđsson.
Helgina 26.-27. júní næstkomandi mun Háskólasetur Vestfjarða halda helgarnámskeið um úrlausn ágreiningsmála við auðlindastjórnun í víðu samhengi. Námskeiðið, sem haldið verður á ensku, er opið utanaðkomandi þátttakendum. Kennt verður frá kl. 9:00 til 15:00 báða daga og munu þátttakendur hlýða á fyrirlestra um efnið og gera margvíslegar æfingar. Markmið námskeiðsins er þjálfa nemendur í að taka tillit til ólíkra hagsmuna við úrlausn ágreiningsmála, ekki síst við erfið skilyrði. Námskeiðið gefur ekki einingar en þátttakendur munu fá viðurkenningarskjal. Kennari á námskeiðinu er Páll Ásgeir Davíðsson.

 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Mörthu Lilju M. Olsen kennslustjóra Háskólaseturs Vestfjarða (marthalilja (hjá) uwestfjords) eða Dagnýju Arnarsdóttur fagstjóra meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun (dagny (hjá) uwestfjords.is).

 

Páll Ásgeir Davíðsson lauk cand.jur gráðu frá Lagadeild Háskóla Íslands og L.L.M. gráðu frá Columbia háskóla í New York. Hann hefur yfir tíu ára alþjóðlega starfsreynslu af málefnum sem varða tengsl á milli mannréttinda, viðskipta og öryggis og starfaði um árabil hjá Sameinuðu þjóðunum. Páll er stofnandi Eþikos, miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi. Sem kennari hefur hann þróað og kennt námskeið um mannréttindi og viðskipti auk námskeiða um alþjóðalög með áherslu á öryggis og friðarmál við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Frá árinu 2007 hefur Páll verið gisti prófessor við Fordham háskólann í New York þar sem hann hefur kennt námskeið um mannréttindi og viðskipti. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hefur Páll starfað á átakasvæðum, m.a. í lýðveldinu Kongó þar sem úrlausn ágreiningsmála í samhengi við nýtingu náttúruauðlinda er bráðnauðsynleg til að ná fram viðvarandi friði.

Háskólasamfélagiđ

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón